Glamour

Fyrsta línan frá nýju systurmerki H&M

Ritstjórn skrifar
skjáskot
Nýja systurmerki sænska verslunarrisans H&M, /Nyden gaf nýverið frá sér litla línu sem gefur forsmekk fyrir opnunina í haust. Um er að ræða stuttermaboli og nú þegar eru einhverjar tegundir uppseldar. 

Mikil eftirvænting er fyrir þessu nýja merki sem er vel frábrugðið öðrum því það fylgir ekki hinu venjulega tískudagatali, ef svo má að orði komast. Það verða engar venjulegar verslanir heldur frekar “pop-up” verslanir og aðrir sérstakir staðir sem vörurnar verða seldar á. Merkið mun ekki fylgja tískuvikunni eða öðrum árstíðabundnum atburðum, og mun ekki fylgja tískustraumum. 

Sá sem stýrir þessu ævintýri heitir Oscar Olsson, og hefur starfað hjá fyrirtækinu frá árinu 2013, aðallega við nýsköpun og stækkunarteymi fyrirtækisins, þar sem /Nyden varð til.

r er hægt að skoða þessa litlu fyrstu línu /Nyden. 






×