Glamour

Kjólinn innblásinn af stríðsdrottningu

Ritstjórn skrifar
Beyonce kann að vekja athygli á rauða dreglinum - nú í svakalegum gullkjól sem hún klæddist þegar hún mætti ásamt fjölskyldu sinni á góðgerðakvöldið Wearable Art Gala sem móðir hennar og stjúpfaðir, Tina Knowles og Richard Lawson, halda á hverju ári. 

Samkvæmt hönnuðum kjólsins, þeim Falguni og Shane Peacock, er innblástur hönnunarinnar frá stríðsdrottningunni Amanishakheto sem er sögð hafa barist við Rómverja. Efri partur kjólsins er tekin frá brynjunni sem her hennar klæddist í stríðinu. „Okkur fannst það viðeigandi innblástur fyrir svona sterka konu eins og Beyoncé.“

Blue Ivy klæddist í stíl við mömmu sína, í gulli á meðan Jay Z var í svörtum jakkafötum sem hann skreytti með orðum. 

Beyoncé hefur haft þann sið á upp á síðkastið að sleppa hinum hefðbundu rauða dregils myndatökum en sjálft deilt myndum á Instagram til aðdáenda sinni. Sem við getum séð hér. 

A post shared by Beyoncé (@beyonce) on

A post shared by Beyoncé (@beyonce) on

A post shared by Beyoncé (@beyonce) on






×