Glamour

San Francisco bannar loðfeld

Ritstjórn skrifar
Af tískupalli Fendi.
Af tískupalli Fendi. Glamour/Getty
Tískuhús eins og Versace, Gucci, Michael Kors og Armani hafa öll hætt að nota alvöru loðfeld í fatalínur sínar, og það er spurning með hvaða tískuhús munu fylgja eftir. Hins vegar þykja það stórar fréttir þegar stórborg eins og San Francisco hefur bannað sölu á öllum flíkum úr alvöru loðfeldi. 

Bannið tekur gildi frá og með 1. janúar 2019, en hefur ekki áhrif á vintage eða secondhand vörur, lamba- eða kindaskinn. Þær verslanir sem eru með loðvörur til sölu núna hafa til 2020 til að selja þær vörur. Stórt skref fyrir stóra borg. 

,,Sala loðfeldar er ekki í takt við anda borgarinnar, þar sem allar lifandi verur eiga að lifa saman í góðvild. Það er engin góð leið til að reyta skinn af dýri," segir í yfirlýsingu.






×