Glamour

Hætt að leika

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Leikkonan Cameron Diaz ku vera alfarið hætt í leiklistinni. Þetta koma heldur óvænt fram hjá vinkonu hennar, Selmu Blair, í viðtali sem hún gerði á dögunum við The Metro þar sem hún var spurð að því hvort það kæmi framhald á mynd sem þær stöllur gerðu saman, The Sweetest Thing.

„Við Cameron hittumst í hádegismat um daginn og vorum einmitt að tala um myndina. Ég væri til í að gera aðra mynd en Cameron er hætt að leika. Hún er bara „ég er búin“,“ sagði Blair og hélt áfram. „Ég meina hún þarf ekki að gera myndir lengur. Hún á mjög gott líf. Ég veit ekki hvað þyrfti að gerast til að hún mundi snúa aftur. Hún er hamingjusöm.“

Síðasta myndin sem Diaz lék í var Annie árið 2014 en síðan þá hefur hún ekki mikið verið í sviðsljósinu. Hún er í sambandi með Benji Madden. 






×