Glamour

Fjölmennt á opnunarhátíð HönnunarMars

Ritstjórn skrifar
Það var margt um manninn í Listasafni Reykjavíkur í gær þegar HönnunarMars var formlega settur. Gestir virtust glaðir enda um að ræða einskonar árlega uppskeruhátíð hönnunar á Íslandi en þetta er í tíunda sinn sem hátíðin fer fram. 

Í Hafnarhúsinu opnaði einnig sýningin Typocraft Helsinki to Reykjavík í portinu þar sem átta hönnuðir eða stúdíó frá hvoru landi taka þátt og vinna með þemað leiðangur en er útgangspunktur verkefnisins týpógrafía í hinum ýmsu myndum. 

Við mælum með að bregða undir sig betri fætinum um helgina og sjá fjölbreytta flóru íslenskrar hönnunar. Nánar um dagskránna hér. 



Myndir/Valli





×