Glamour

Stjarna fagnar 30 ára afmæli í dag

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Engin önnur en Rihanna er afmælisbarn dagsins, og fagnar hún þrjátíu ára stórafmæli. Rihanna er sannkölluð fyrirmynd, hvort sem það er í tísku- eða tónlistarheiminum.

Í tilefni dagsins förum við yfir hennar skemmtilegustu dress, en Rihanna er alltaf frumleg, litrík og skemmtileg. Þó hún fylgi trendum og tískustraumum þá setur hún alltaf sinn svip á dressið og er aldrei hrædd við að vera öðruvísi en aðrir.

Rihanna er mjög hrifin af gallefni.
Í gallaefni frá toppi til táar, dressið er frá Tom Ford.
Í Commes Des Garcons frá Rei Kawakubo.
Allar flíkur í yfirstærð en passa samt svo vel.
Ljósbrún dragt við rauðan varalit og dökkt hár, svo flott.





×