Glamour

Þaktar lit á tískupallinum

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Það var greinilegt að Jackie Kennedy var innblástur Jeremy Scott yfirhönnuðs Moschino þegar hann sýndi haust og vetrarlínu tískuhússins í Mílanó í gær. 

Pilsadragtir og blásið hár eins og klipp út úr sjöunda áratuginum voru lykilflíkur í línunni og var litadýrðin út um allt. Meira að segja voru fyrirsæturnar málaða frá toppi til táar, það hefur eitthvað gengið á hjá förðunarteyminu baksviðs. 

Skemmtilegt og gaf óneitanlega litríkum flíkum skemmtilegt yfirbragð. 






×