Glamour

Trendið frá tískupöllunum

Ritstjórn skrifar
Prada, Christopher Kane og Gucci
Prada, Christopher Kane og Gucci Glamour/Getty
Nú þegar tískuvikurnar eru í fullum gangi og tískuhúsin sýna línur sínar fyrir næsta haust, þá er oft hægt að rekast á trend sem útfærð eru á mismunandi hátt hjá hönnuðum. Gegnsætt er mjög áberandi fyrir sumarið, en það mun halda áfram og inn í næsta vetur líka.

Tískuhús eins og Gucci og Prada settu gegnsætt efni yfir kjóla, boli og pils, en Molly Goddard, Shrimps og Simone Rocha sýndu kjóla úr þessu efni. 

Hvað þarft þú til að ná þessu trendi? Fá þér stóran gegnsæjan bol og skella honum yfir allt. Notaðu ímyndunaraflið!

Shrimps
Burberry
Burberry
Molly Goddard
Simone Rocha





×