Glamour

Halda í köflótta mynstrið í London

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Tískuvikan í London er nýyfirstaðin og hefur Mílanó tekið við. Götutískan í London er alltaf jafn frumleg og litaglöð, en það var eitt trend sem stóð upp úr að þessu sinni. Köflótt mynstur var gríðarlega áberandi, hvort sem það var í hefðbundnum brúnum eða gráum lit eða í skærari litum. Burberry-áhrifin náðu greinilega langt út fyrir tískupallinn, og má búast við að köflótt haldi áfram inn í vorið og alveg fram á næsta haust.

Christopher Bailey kveður Burberry eftir 17 ár hjá tískuhúsinu. Lestu um það hér


Köflótt kápa yfir köflóttan jakka kemur mjög vel út hérna.
Frá sýningu Burberry.
Frá sýningu Burberry.





×