Glamour

Í Converse á rauða dreglinum

Ritstjórn skrifar
Millie Bobby Brown
Millie Bobby Brown Glamour/Getty
Leikkonan unga Millie Bobby Brown hefur fyrir löngu vakið athygli fyrir skemmtilegan fatastíl og hún sló í gegn á Screen Actors Guild Awards sem fór fram vestanhafs í nótt. 

Stranger Things leikkonan klæddist bleikum pallíettukjól frá Calvin Klein og besta skóbúnaði kvöldsins, snjóhvítum lágum Converse. Tveir snúðar með svörtum slaufum og bleikur varalitur settu svo punktinn yfir i-ið. 

Í viðtali við blaðakonu E! sagðist Brown, sem var tilnefnd í tveimur flokkum á hátíðinin, vera tilbúin á dansgólfið enda SAG besta partýið af öllum. Eitthvað tilað taka til fyrirmyndar - strigaskórinn passar við allt!






×