Glamour

Litríkar yfirhafnir í sænska frostinu

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Þessa stundina er tískuvikan í fullum gangi hjá nágrönnum okkar í Stokkhólmi en gestir tískuvikunnar þurfa að klæða sig vel í frostinu og snjónum í Svíþjóð.

Götutískan ber þess því merki en gaman er að sjá hversu litrík hún er. Eitthvað sem við hér á Íslandi getum kannski tekið til fyrirmyndar? Að klæðast litríkri yfirhöfn getur bryddað upp á gráan hversdaginn og komið manni í gott skap yfir myrkustu vetrarmánuðina. 

Fáum innblástur frá Stokkhólmi. 






×