Glamour

Nýjasta auglýsing Ikea er líka óléttupróf

Ritstjórn skrifar
Mynd: IKEA/åkestam holst
Ný IKEA auglýsing býður óléttum konum barnarúm á 50% afslætti ef þær einfaldlega pissa á auglýsinguna. Í auglýsingunni er einnig óléttupróf, og ef það reynist jákvætt þá sýnir það nýja verðið á rúminu. 

Auglýsingin var gerð í samstarfi við auglýsingastofuna åkestam holstog tæknifyrirtækið Mercene Labs, og var nokkuð flókin í bígerð. Á auglýsingunni sést barnarúm, og er fullt verð við hliðina á rúminu. Ef ólétt kona pissar á prófið þá kemur upp nýtt verð. 

Sniðug og skemmtileg auglýsing sem mun án efa vekja mikið umtal. En ætli einhver mæti með blað í verslunina sem búið er að pissa á? 

IKEA - Pee Ad from Ourwork on Vimeo.






×