Glamour

Balmain í samstarf með Victoria´s Secret

Ritstjórn skrifar
Sara Sampaio og Olivier Rousteing
Sara Sampaio og Olivier Rousteing Glamour/Getty
Franska tískuhúsið Balmain með Olivier Rousteing fremstan í farabroddi ætlar að vinna með undirfataframleiðandanum Victoria´s Secret og búa til sérstaka línu sem er væntanleg í sölu þann 29 nóvember næstkomandi. 

Þá mun Balmain koma að tískusýningu Victoria´s Secret sem á að vera þann 28 nóvember og hanna nokkur vel valin lúkk. Þetta er í fyrsta sinn sem undirfataframleiðandinn vinsæli er í samstarfi við tískuhús og miðað við vinsældir Balmain má búast við vinsælli línu. 

Þða ar vanalega öllu tjaldað til á hinum árlegu sýningum Victoria´s Secret en CBS í Bandaríkjunum sýnir beint frá viðburðinum ásamt því að vinsælir tónlistarmenn hafa vanalega komið og leikið undir á tískupallinum. 

Irina Shayk gengur hér tískupallinn hjá undirfataframleiðandanum á meðan Weeknd syngur.





×