Glamour

Gigi Hadid var stjarna Tommy Hilfiger í London

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Sýning Tommy Hilfiger lokaði tískuvikunni í London og uppskar mikinn fögnuð, en þetta var sýning á sumarlínunni 2018. Sýningin var stjörnum prýdd og hélt hann fast aftur í rætur sínar, en það var mikið um rokk, hvítt, blátt og rautt, sem eru aðal-litir Tommy Hilfiger.

Systurnar Gigi og Bella Hadid gengu tískupallinn, en þær eru einar vinsælustu fyrirsætur heims í dag. 

Síðar blómaskyrtur, leðurbuxur og blá velúr-kápa líta mjög girnilega út. 






×