Glamour

Tískudrottning í KALDA

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Tískudrottningin Eva Chen klæddist KALDA skóm á tískuvikunni í New York um helgina. Eva hefur lengi starfað í tískuheiminum og sinnt mörgum störfum innan hans, en vinnur nú hjá Instagram. 

Sjálf er hún með um 725.000 fylgjendur á Instagram. 

Frábært er að sjá íslensk merki ryðja sér til rúms í tískuheiminum erlendis, en skór KALDA eru bæði fallegir og sérstakir. Katrín Alda er eigandi og hönnuður merkisins. 

Við hlökkum til að fylgjast betur með KALDA í framtíðinni, því Katrín er bara rétt að byrja. 

Parroty bag, sheepy shoes for #NYFW

A post shared by Eva Chen (@evachen212) on






×