Glamour

Vinsælasta mynstrið í New York

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Glamour hefur fylgst vel með götustílnum á tískuvikunni sem nú stendur yfir í New York. Köflótt er eitt af aðal tískustraumum haustsins, og er það strax orðið mjög áberandi þó September sé rétt byrjaður. 

Köflótt er einnig farið að streyma inn í búðirnar hér á landi, þannig nú er góður tími til að finna sér eitthvað í því mynstri. Köflótt er mjög klassískt og hægt að nota það við margt.

Hér koma nokkrar skemmtilegar útfærslur af hvernig hægt er að nota köflótt, tekið frá götustílnum í New York. 

Kate Bosworth





×