Glamour

Varpaði ljósi á heimilisofbeldi í þakkarræðu sinni

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Leikkonan, og forsíðurfyrirsæta júlí/ágústtölublaðs íslenska Glamour, Nicole Kidman vann Emmy verðlaun fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum Big Little Lies. 

Í þakkarræðu sinni fór Kidman mikinn og sagði verðlaunin varpa ljósi á heimilisofbeldi, afleiðingar þess og fórnarlömb. „Það er algengara en við leyfum okkur að horfast í augu við,“ sagði Kidman meðal annars sem og að hún þakkaði eiginmanni sínum, Keith Urban sem táraðist út í sal, og börnum. 

Í Big Little Lies leikur Kidman yfirstéttakonuna Celeste sem er fórnarlamb heimilisofbeldis og hafði þetta að segja um hlutverkið í forsíðuviðtali Glamour í sumar: 

„Ég fór mjög djúpt inn í karakterinn. Mig langaði að vera eins trú hlutverkinu og ég gat og dró það fram frá alls konar stöðum – og ég verð að segja að það var ansi yfirþyrmandi á köflum – og ágengt og truflandi og ég skammaðist mín stundum þegar ég fór heim á kvöldin. Oftast get ég slitið mig frá hlutverkinu en í þessu tilfelli var það erfitt. Það var greypt í mig.“

Þættirnir, sem eru meðal annars framleiddir af Kidman og Reese Witherspoon voru einkar sigursælir á hátíðinni en þeir voru sýndir á Stöð 2 í vor. 










×