Glamour

Skemmtilegt partýdress fyrir helgina

Ritstjórn skrifar
Margir eru með plön fyrir Menningarnótt, enda mikið í gangi á því skemmtilega kvöldi. Stundum vantar eitthvað smá í fataskápinn og nú þarf það ekki að kosta mikið. Allar flíkurnar hér eru undir 10 þúsund krónum og því um að gera að skella sér í partýgallann fyrir morgundaginn.

Kjóllinn er nýr í Vila og kostar 4.990 kr. 

Bolurinn er frá Stine Goya og fæst í Geysi, hann kostar 8.900 kr. Mjög fallegur litur á honum. 

Gallabuxurnar fást í Zöru og kosta 4.995 krónur. 

Eyrnalokkarnir gera mikið fyrir dressið. Þeir eru frá Lindex og kosta 1.299 krónur. 

Skórnir kosta 4.995 og fást í Focus






×