Glamour

Dress vikunnar - hver flík undir 10 þúsund krónum

Ristjórn skrifar
Glamour
Þá er aftur kominn fimmtudagur og við byrjum hann að sjálfsögðu með okkar fasta lið, en það eru nokkrar flíkur undir 10 þúsund krónum.

Við látum veðrið ekki á okkur fá og klæðumst litum, og fallegum blómajakka við strigaskó. Gula taskan er gegnsæ, og gefur hún töffaralegt yfirbragð. Fullkomin á dögum þar sem við þurfum einungis að hafa fáa hluti með okkur.

Jakkinn er úr Zöru og kostar 7.995 kr. 

Stuttermabolurinn er frá Levi's og kostar 3.990 kr. 

Blúndutoppurinn er frá Lindex og er einnig á 3.990 kr.

Nike skórnir fást í Skór.is og kosta 9.097 kr. á útsölu.

Taskan er á 1.250 kr. og fæst í Akkúrat






×