Glamour

Fjölmennt hjá Andreu og Elísabetu

Ritstjórn skrifar
Myndir/Aldís Páls
Fatahönnuðurinn Andrea Magnúsdóttir og tískubloggarinn Elísabet Gunnarsdóttir hófu á dögunum sölu á stuttermabolum með áletruninni Konur eru konum bestar en allur ágóði af sölunni rennur til styrktar Kvennaathvarfinu. 

Sannkölluð gleðistemming var í verslun Andreu á Laugavegi 72 í síðustu þegar bolirnir fóru í sölu en þeir runni út eins og heitar lummar. Sumarflíkin í ár með mikilvægum skilaboðum sem allir mega hafa bakvið eyrað. 

Ljósmyndarinn Aldís Páls fangaði brosmilda gesti á filmu. Hægt er að skoða fleiri myndir í myndaalbúminu neðst í fréttinni. 






×