Glamour

Hressandi dregill á Billboard tónlistarverðlaununum

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Það var mikið um dýrðir í Las Vegas í gærkvöldi þar sem Billboard tónlistarverðlaunin voru veitt með pompi og pragt. 

Stjörnurnar fjölmenntu og var rauði dregillinn einkar hressandi þar sem allskonar múnderingar litu dagsins ljós. Þap var tónlistarmaðurinn Drake sem vann flest verðlaun, Gwen Stefani hlaur heiðursverlaun, Miley Cyrus flutti glænýtt lag og það Celine Dion og Cher komu fram og sýndu yngri tónlistarfólki hvernig á að gera þetta. 

Hér eru þær stjörnur sem okkur þótti bera af frá rauða dreglinum. 

Celine Dion
Gwen Stefani
Olivia Wilde
Nicole Scherzinger
Lea Michele
Rita Ora
Vanessa Hudgens





×