Glamour

Blake Lively í neon gulum kjól

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Leikkonan Blake Lively klikkar yfirleitt ekki þegar kemur að fatavali og var stórglæsileg þegar hún mætti á árlegan vorfagnað American Ballet Theater. 

Það er ekki oft sem maður sér þennan neongula lit á rauða dreglinum en hún klæddist kjól frá Oscar de la Renta sem fór henni einkar vel. Við var hún svo í skærbleikri kápu, forvitnileg samsetning sem kom afbragðs vel út.

Spurning um að taka aftur fram neonlitinn?






×