Glamour

Næsta Lisbeth Salander?

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Breska leikkonan Claire Foy, sem flestir þekkja úr sjónvarpsþáttunum The Crown þar sem hún fer vel með hlutverk Bretlandsdrottningar, ku vera í viðræðum um að leika tölvuhakkarann fræga Listbeth Salander í næstu mynd byggðri á metsölubók David Lagerkrantz. Bókin er sjálfstætt framhald af metsöluseríu Stieg Larsson.

Myndin er „The Girl in the Spider´s web“ og er Foy efst á óskalista Sony fyrir leikkonur til að taka að sér hlutverkið. Þá fetar hún í fótspor Noomi Rapace og Rooney Mara, sem báðar hlutu lof fyrir leik sinn í myndum byggðum á bókunum. 

Foy er þessa stundina að klára að leika í annarri seríu The Crown og er einnig í viðræðum við leikstjórann Damien Chazelle, sem leikstýrði La la Land, um hlutverk í hans næstu mynd, First Man þar sem Ryan Gosling bregður sér í hlutverk Neil Armstrong. 

Noomi Rapace og Mikael Nyqvist í hlutverkum sínum í sænsku myndinni byggðum á metsölubókum David Lagerkrantz.





×