Glamour

Glæsilegir síðkjólar í rigningunni í Osló

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Norsku konungshjónin, Haraldur og Sonja, blésu til heljarinnar fögnuðar í Osló í gær í tilefni af 80 ára afmæli sínu. Konungsfólk frá allri Evrópu fjölmenntu, að sjálfsögðu í sínu fínasta pússi. 

Íslensku forsetahjónin, Guðni og Elíza létu sig ekki vanta og tóku sig vel út á rauða dreglinum, þrátt fyrir að úrhellisrigning setti strik í reikninginn. Allir löbbuðu því inn með glærar regnhlífar til að skýla sig fyrir regndropunum. 

Litagleðin var allsráðandi hjá prinsessunum - skoðum kjólana. 

Guðni og Elíza voru stórglæsileg bæði tvö.
Sænska krónprinsessan Viktoría var í blómakjól frá sænska merkinu Acne.
Mary, krónprinsessa Danmerkur var í kjól frá Erdem og Friðrik krónprinsinn var í dökkbláum smókingjakka.
Sænski prinsinn Karl Filipp ásamt eiginkonu sinni Sofiu sem er barnshafandi en hún var í kjól frá bandaríska hönnuðinum Alexis Barbara.
Hollensku konungshjónin, Maxima og Willem-Alexander, lentu í smá basli með regnhlífina en það kom ekki að sök.
Norska prinsessan, Märtha Louise, var í fagurgrænum kjól frá norska hönnuðinum Ingunn Birkeland.
Norska krónprinsparið lét sig að sjálfsögðu ekki vanta, hún var í dökkbláum kjól frá Marte Krogh.





×