Glamour

Kendall Jenner er andlit La Perla

GLAMOUR/SKJÁSKOT
Það vantar ekki verkefnin hjá Kendall Jenner en hún er meðal annars andlit nýrrar herferðar fyrir undirfatarisann La Perla. La Perla er þekkt fyrir einstaklega falleg og vönduð undirföt og er haustlína þeirra engin undantekning þar á.

Julia Haart, listrænn hönnuður segir að línan sé náttúran í gengum auga listmanns og hún hafi fengið innblástur frá endurreisnartímabilinu, impressionisma og Georgia O´Keeffe. Kendall var einnig andlit vorherferðar fyrirtækisins, þau eru greinilega ánægð með sína konu.





×