Glamour

Rihanna afgreiddi skó í sinni eigin verslun

Ritstjórn skrifar
Það var nóg að gera hjá Rihanna að afgreiða skópör.
Það var nóg að gera hjá Rihanna að afgreiða skópör. Myndir/Fenty Puma
Þegar Rihanna opnaði pop-up verslun í Los Angeles í vikunni stóð hún sjálf vaktina við búðarborðið. Í versluninni voru seldar flíkur og skór úr sumarlínu Fenty x Puma. Þar mátti meðal annars finna vinsælu Creeper skó sem slegið hafa í gegn hér á landi.

Mikill fjöldi fólks safnaðist fyrir utan verslunina til þess að berja augum á stjörnuna en fáir áttu líklegast von á því að kaupa sér flíkur sem yrðu afgreiddar af henni sjálfri. Rihanna er þekkt fyrir að stíga út fyrir kassann. Það er því nokkuð ljóst að þetta uppátæki hennar hafi slegið í gegn hjá aðdáendum hennar. 






×