Messi í ham þegar Barcelona lagði Juventus að velli | Sjáðu mörkin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lionel Messi sýndi snilli sína þegar Barcelona vann 3-0 sigur á Juventus í D-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Messi skoraði tvívegis í leiknum og var í algjörum sérflokki á vellinum.

Argentínumaðurinn kom Barcelona yfir á lokamínútu fyrri hálfleiks eftir sendingu frá Luis Suárez.

Ivan Rakitic bætti öðru marki við á 56. mínútu og 13 mínútum síðar skoraði Messi sitt annað mark og þriðja mark Börsunga. Þetta eru fyrstu mörkin sem Messi skorar hjá Gianluigi Buffon, markverði Juventus.

Messi hefur verið í fantaformi í byrjun tímabils og skorað átta mörk í fyrstu sex leikjum Barcelona í öllum keppnum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira