Golf

Ólafía fékk rúmar 10 milljónir | Komin í 67. sæti peningalistans

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. vísir/ernir
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir fékk 10,8 milljónir fyrir árangur sinn á Indy Women In Tech-mótinu á LPGA-mótaröðinni í gær og meira en tvöfaldaði heildarverðlaunfé sitt í ár.

Árangurinn þýðir að Ólafía er svo gott sem örugg með sæti á mótaröðinni á næsta ári en hún er nú komin upp í 67. sæti peningalistans en 100 efstu kylfingarnir endurnýja þátttökurétt sinn á mótaröðinni.

Sjá einnig: Ólafía: Sá þetta fyrir mér og þetta tókst

Ólafía var í 106. sæti peningalistans fyrir mótið í Indiana um helgina og hoppaði því upp um 39 sæti með árangri sínum á móti helgarinnar.

Staða Ólafíu á peningalistanum.
80 tekjuhæstu kylfingarnir ár hvert komast í efsta þrep forgangslistans á mótaröðinni og er árangur Ólafíu í dag ekki síst mikilvægur í því ljósi. Hún á því góðan möguleika á keppa á öllum þeim mótum sem hún kýs að taka þátt í á næstu leiktíð ef hún heldur sér á meðal 80 efstu.

Sjá einnig: Örn á lokaholunni skaut Ólafíu upp í þriðja sætið

Ólafía fékk 103 þúsund dollara fyrir árangurinn í dag en var áður búin að fá samtals 72 þúsund dollara. Hún hefur því aflað alls 175 þúsund dollara á tímabilinu, jafnvirði 18,5 milljóna króna.

Hér má sjá upplýsingar um forgangslista LPGA-mótaraðarinnar [hlekkur á PDF-skjal] í ár en þar kemur fram að efsti flokkur á listanum eru 80 tekjuhæstu kylfingar síðusta tímabils.

Ólafía Þórunn mun nú halda með fullt sjálfstraust inn í Evian Championship mótið sem hefst í næstu viku en það er síðasta risamót ársins. Ólafía hefur nú þegar keppt á tveimur risamótum til þessa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×