Körfubolti

Martin tilnefndur sem sá besti

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Martin er stigahæstur í frönsku B-deildinni.
Martin er stigahæstur í frönsku B-deildinni. vísir/anton
Martin Hermannsson er einn þeirra fimm sem eru tilnefndir sem besti leikmaður frönsku B-deildarinnar í körfubolta.

Íslenski landsliðsmaðurinn hefur slegið í gegn með Charleville-Mézieres, á sínu fyrsta tímabili í atvinnumensku.

Martin er stigahæsti leikmaður frönsku B-deildarinnar með 17,7 stig að meðaltali í leik.

Hann er einnig í 7. sæti yfir stoðsendingahæstu leikmenn deildarinnar, með 5,6 slíkar að meðaltali í leik.

Aaron Broussard, sem varð Íslandsmeistari með Grindavík 2013, er einnig tilnefndur sem besti leikmaður B-deildarinnar. Hann leikur með Fos-sur-Mer sem er í 2. sæti, einu sæti ofar en Charleville-Mézieres.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×