Handbolti

HBStatz: Janus Daði bestur í bæði sókn og vörn á móti Egyptalandi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Janus Daði Smárason.
Janus Daði Smárason. Vísir/Vilhelm
Janus Daði Smárason átti mjög góða innkomu í íslenska handboltalandsliðið í þriggja marka sigri liðsins á Egyptalandi á Bygma-æfingamótinu í Danmörku í gær. HBStatz tölfræðigreiningin sýnir og sannar að Haukamaðurinn hafi spilað best allra í íslenska liðinu í gær.

Janus Daði Smárason er einn af ungu strákunum sem er að reyna að vinna sér sæti í HM-hóp Geir Sveinssonar en hann mun skera niður um tvo leikmenn eftir æfingarmótið sem lýkur á sunnudagskvöldið.

Janus Daði Smárason byrjaði á bekknum en kom sterkur inn eftir að lítið hafði gengið hjá íslenska liðinu í upphafi leiks.

HBStatz fylgist vel með frammistöðu íslensku strákanna og hefur nú tekið saman tölfræðiskýrslu sína frá leiknum í gær. Það er hægt að sjá úttekt þeirra á leiknum með því að smella hér.

Þar vekur athygli að Janus Daði Smárason var með bestu einkunnina í bæði sókn og vörn á móti Egyptalandi.

Janus Daði fékk 8,1 í einkunn fyrir sóknarleikinn og var þar hærri en Bjarki Már Elísson (7,7) og  Ómar Ingi Magnússon (7,6) sem komu næstir. Guðjón Valur Sigurðsson spilaði bara fyrri hálfleikinn en var fjórði með 7,3 í einkunn fyrir sóknarleikinn eða sömu einkunn og Ólafur Guðmundsson.

Janus Daði skoraði 2 mörk úr 4 skotum og var einnig skráður með 4 stoðsendingar og 2 fiskuð víti.

Janus Daði fékk síðan 7,7 í einkunn fyrir varnarleikinn en næstu menn þar voru þeir Arnar Freyr Arnarsson (7,3) og Guðjón Valur Sigurðsson (6,9). Guðjón Valur tók meðal annars fjögur fráköst á þeim 30 mínútum sem hann spilaði. Janus Daði náði fimm löglegum stöðvunum og tók einnig þrjú fráköst.

Janus Daði fékk líka hrós frá Geir eftir leikinn: „Janus fannst mér koma sterkur inn og hann átti flotta spretti. Hann var sérstaklega sterkur varnarlega þar sem hann gat spilað tvær varnarstöður fyrir okkur sem gekk alveg ljómandi vel. Það var flott innkoma hjá honum,“ sagði Geir.



Besta frammistaðan í sókn á móti Egyptum:

Janus Daði Smárason     8.1     

Bjarki Már Elísson     7.7

Ómar Ingi Magnússon     7.6

Guðjón Valur Sigurðsson     7.3

Ólafur Guðmundsson     7.3

Arnór Þór Gunnarsson     7.0

Ásgeir Örn Hallgrímsson     6.8

Besta frammistaðan í vörn á móti Egyptum:

Janus Daði Smárason     7.7

Arnar Freyr Arnarsson     7.3

Guðjón Valur Sigurðsson     6.9

Bjarki Már Elísson     6.8

Guðmundur Hólmar Helgason     6.3

Ólafur Guðmundsson     6.2

Ásgeir Örn Hallgrímsson  6.2

Besta frammistaðan í heild á móti Egyptum:

Janus Daði Smárason     7.9     

Bjarki Már Elísson     7.0     

Ómar Ingi Magnússon     7.0     

Guðjón Valur Sigurðsson     6.9     

Ólafur Guðmundsson     6.9     

Ásgeir Örn Hallgrímsson     6.4     

Arnar Freyr Arnarsson     6.2     

Arnór Þór Gunnarsson     6.2    


Tengdar fréttir

Janus Daði búinn að semja við Álaborg

Landsliðsmaðurinn Janus Daði Smárason stóð sig vel með landsliðinu í Gigantium-höllinni í Álaborg í gær og það verður hans heimavöllur á næstu leiktíð.

Frábær markvarsla úr hornum

Einn vinsælasti frasinn um íslenska handboltamarkverði er sú að þeir geti ekki varið úr horni til þess að bjarga lífi sínu. Það var ekki raunin í leik íslenska landsliðsins gegn Egyptum í gær.

Ungu strákana langar á HM

Íslenska handboltalandsliðið vann þriggja marka sigur á Egyptum í gær í fyrsta undirbúningsleik fyrir HM í Frakklandi. Liðið kom sterkt til baka eftir slaka byrjun. Ungu strákarnir mættu mjög grimmir til leiks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×