Fótbolti

Simeone styttir samning sinn við Atletico

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Diego Simeone.
Diego Simeone. vísir/getty
Diego Simeone, þjálfari Atletico Madrid, staðfesti í dag að hann væri búinn að stytta samning sinn við félagið um tvö ár.

Samningur hans við félagið var til 2020 en rennur nú út sumarið 2018.

Þjálfarinn vill sem minnst gera úr þessari áhugaverðu breytingu á samningsmálum hans.

„Við getum samið upp á nýtt eftir tvö ár. Þessi breyting þýðir ekki að ég fari eftir tvö ár,“ sagði Simeone.

„Við teljum þetta vera best fyrir félagið. Það geta allir slakað á. Það er allt í góðu á milli okkar.“

Simeone hefur náð stórkostlegum árangri með Atletico og því er hann eðlilega eftirsóttur af stærstu liðum Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×