Innlent

Menn kunna engar skýringar á plágu lúsmýs í Kjósinni

Jakob Bjarnar skrifar
Erling kann engar skýringar á þessari dularfullu plágu lúsmýs sem gaus upp um helgina í Kjósinni.
Erling kann engar skýringar á þessari dularfullu plágu lúsmýs sem gaus upp um helgina í Kjósinni.
Erling Ólafsson, skordýrafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, segir plágu lúsmýs sem gaus upp um helgina meðal þeirra sem dvöldu í sumarhúsum við Hvalfjörðinn, efni í reifara. „Þetta er viðbjóður. Ég mæli ekki með þessu. Ég kynntist þessu í útlöndum. En, þetta er ákaflega undarlegt mál. Þetta er tegund sem ekki hefur verið staðfest hér á landi áður. Og það blossar upp einu og sömu helgina á nokkrum stöðum á takmörkuðu svæði við Hvalfjörð. Eitt í Kjósinni og svo norðan fjarðarins einnig,“ segir  Erling, sem nú rannsakar málið.

Vísir hefur greint frá þessari skelfilegu plágu í morgun.

Erling hefur birt grein um málið á netinu þar sem hann fer í saumana á því hvers kyns er og hvað liggur fyrir.

Skordýrafræðingurinn er gapandi

„Ég kann engar skýringar á þessu. Svona kvikindi geta borist með vindum frá Evrópu, en af hverju lenda þau öll í Kjósinni? Ísland er stærra en Kjósin, og litar líkur á því að einhver slíkur svermur lendi allur þar. Þetta gæti verðið spurning um innfluttan jarðveg, lirfur geta lifað þar góðu lífi, en ég veit það ekki. Innfluttur jarðvegur er víðar en í Kjósinni. Ég hef ekkert í höndunum og er alveg gapandi yfir þessu.“

Næsta skref er að finna út úr því nákvæmlega hvaða tegund þetta er nákvæmlega og Erling er nú að setja sig í samband við sérfróða aðila erlendis. „Þetta eru allt blóðsugur af þessari ætt, en þessi líkist blátungu, sem leggst á hross og kýr og orsakar skæð exem og illan kláða.“

Lúsmýið þarf blankalogn til að athafna sig

Erling segir þetta skrýtið mál og ekki sé endilega víst að þetta komi upp aftur. Lúsmýið þarf ákveðnar aðstæður, til að mynda blankalogn til að athafna sig. Því líkar illa gjólan. Veðurfarsskilyrði voru til staðar þessa helgi sem olli þessum atgangi um síðustu helgi. Veður eins og er í dag er ekki hentugt mýinu. Og að þetta sé að gerast í sumarhúsum er engin tilviljun, að mati Erlings.

„Menn búnir að girða sig af með trjágróðri og þar er logn. Þess vegna lenda íbúar sumarhúsanna í þessu. Búið að ramma inn sumarhúsin sum hver. Þar eru kjöraðstæður fyrir svona atlögur. Spurning um að höggva trén niður og láta rabbabarann duga?“

...

Vísir þiggur allar ábendingar um þetta dularfulla fyrirbæri með þökkum og má senda þær á ritstjorn@visir.is


Tengdar fréttir

Bitinn af nýrri tegund bitmýs á Íslandi

Líkami Karls Tómassonar er allur undirlagður biti eftir sumarbústaðarferð síðastliðna helgi. Náttúrufræðistofnun Íslands telur að um nýja tegund á Íslandi sé að ræða og rannsakar nú bitmýið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×