Innlent

Segir póstþjónustu á búðarkassa asnalega

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Pálmi Kristjánsson, verslunarstjóri í Kjarval, segir að þótt miklar annir séu búðinni sé póstþjónustan þar í lagi.
Pálmi Kristjánsson, verslunarstjóri í Kjarval, segir að þótt miklar annir séu búðinni sé póstþjónustan þar í lagi.
„Ég held varla að það sé möguleiki á því að menn hafi sett þetta niður með asnalegri hætti heldur en hér,“ segir Ásgeir Magnússon, sveitarstjóri Mýrdalshrepps, um fyrirkomulag póstafgreiðslu í versluninni Kjarval í Vík.

Að sögn Ásgeirs var afgreiðsla Íslandspósts í Vík þar til í fyrravetur í höndum bókhaldsfyrirtækis í þorpinu. Þar hafi verið opið frá níu til fjögur eins og í venjulegum póstafgreiðslum. Nú sé aðeins opið fyrir póstinn frá ellefu til þrjú í Kjarval.

Sveitarstjórninni gagnrýnir fyrirkomulagið harðlega í bókun og krefst þess að strax verði bætt úr. „Ekki aðeins var afgreiðslutíminn styttur til muna, heldur er póstafgreiðslunni troðið við hliðina á búðarkassa í verslun Kjarvals í Vík og aðgengi að póstþjónustunni er algerlega ófullnægjandi,“ segir sveitarstjórnin.

Ásgeir Magnússon, sveitarstjóri Mýrdalshrepps.


„Þetta er náttúrlega engin þjónusta sem er verið að veita okkur,“ segir Ásgeir sem kveður heimamenn sömuleiðis ósátta við hversu lítil verslunin sé yfirhöfuð. Sveitarstjórnin vill að búðin verði stækkuð.

„Þessi verslun getur alveg annað því fólki sem hér býr undir venjulegum kringumstæðum en hún gerir það engan vegin á háannatíma ferðaþjónustunnar. Það er kvíðvænlegt að fara í búðina af því að það er svo mikið að gera,“ segir sveitarstjórinn.

Pálmi Kristjánsson, verslunarstjóri í Kjarval, kveðst undrast hversu hvassyrt sveitarstjórnin sé.

„Þetta gengur held ég alveg nánast upp. Mér finnst menn vera að blása þetta ótrúlega mikið upp,“ segir Pálmi. „Það vita náttúrlega allir að búðin er sprungin miðað við traffíkina á sumrin. En það er bara einn fimmti hluti alls ársins.“

Pálmi bendir á að Kaupás, móðurfélag Kjarvals, sé í söluferli um þessar mundir. „Þannig að það er örugglega í bið að menn séu að spá í að stækka verslunina hér,“ segir Pálmi. Það sé hins vegar hans skoðun að ýmissa breytinga sé þörf, til dæmis að flytja búðina í stærra húsnæði. „Það væri örggulega gaman fyrir marga að sjá lagerplássið á sumrin hjá mér."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×