Handbolti

Þorgerður Anna á leið til Noregs

Þorgerður Anna í leik gegn Fram.
Þorgerður Anna í leik gegn Fram.
Ein besta handknattleikskona landsins, Þorgerður Anna Atladóttir, er á förum frá Val en hún hefur samið við norska félagið Flint/Tønsberg til tveggja ára.

Þorgerður Anna greindi frá þessu á Facebook-síðu sinni í dag.

Hún er annar landsliðsmaðurinn sem gengur í raðir félagsins á skömmum tíma en HK-ingurinn Brynja Magnúsdóttir skrifaði undir samning við liðið í vikunni.

Þetta er mikið áfall fyrir Val þar sem Þorgerður Anna hefur verið í lykilhlutverki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×