Skoðun

Skólaforeldrar í aðalhlutverki

Margrét V. Helgadóttir skrifar
Nú í haust hófu um það bil 1.400 nýir nemendur skólagöngu í 1. bekk í grunnskólum Reykjavíkur. Við þau tímamót er gaman að láta hugann reika til þess dags þegar við foreldrarnir vorum í þessum sporum og mættum full eftirvæntingar fyrsta skóladaginn. Þetta er stór dagur fyrir börnin en ekki síður fyrir okkur foreldrana. Litlu ungarnir okkar á leið inn í tíu ára grunnskólaferðalag og við teljum okkur jú vita manna best hvað þau eiga eftir að læra og reyna á vegferð þessari.

Skólaumhverfið hefur þó breyst gríðarlega frá því við, foreldrarnir, hófum okkar skólagöngu. Heimilin taka meiri þátt í námi barnanna og skólinn tekur meiri þátt í gæslu og umönnun barna. Skilin á milli hlutverka heimila og skóla eru gjörbreytt miðað við það sem áður þekktist. Foreldrar gegna orðið miklu stærra hlutverki í skólasamfélaginu. Búið er að skilgreina ýmis hlutverk sem foreldrar taka að sér og auka þannig samstarf heimila og skóla til muna.

Þar má nefna hin lögbundnu foreldrafélög og fulltrúa foreldra í skólaráði, hlutverk bekkjarfulltrúa og foreldraröltið. Við foreldrar erum afar mikilvæg auðlind í skólastarfi í dag og þurfum að vera dugleg að hvetja hvert annað áfram á þeirri braut.

Sem betur fer er alltaf ákveðinn kjarni foreldra tilbúinn að starfa í foreldrafélögum og taka að sér hlutverk bekkjarfulltrúa og það ber að þakka. Vonandi sjá æ fleiri foreldrar hversu skemmtilegt og gefandi það er að starfa í skólasamfélaginu og fá tækifæri til að kynnast því betur í gegnum foreldrastarfið núna í vetur. Fyrir þá foreldra sem vilja taka beinan þátt í skipulögðu starfi þá eru valdir bekkjarfulltrúar í öllum árgöngum í grunnskólum á haustin og oftast eru aðalfundir haldnir á vorin og þá er kosin stjórn foreldrafélagsins. En það er ekki nauðsynlegt að vera kjörinn bekkjarfulltrúi eða sitja í stjórn foreldrafélagsins til að taka þátt. Það er hægt að taka þátt með því að láta vita af áhuga sínum eða bjóða fram starfskrafta sína í einstök verkefni. Ef allir foreldrar gefa kost á sér í eitt verkefni á vetri í þágu bekkjarins eða skólans verður vetrarstarfið leikur einn.

Í öllum skólum eru starfandi foreldrafélög. SAMFOK eru svæðasamtök foreldra í grunnskólum Reykjavíkurborgar. Til SAMFOK geta foreldrar, bekkjarfulltrúar, skólaráðsfulltrúar og stjórnir foreldrafélaga leitað eftir ráðgjöf og aðstoð í hinum ýmsu málum sem snúa að foreldrastarfinu eða samskiptum við skólann. Á haustin eru haldin bekkjarfulltrúanámskeið til að kynna hlutverkið fyrir nýjum bekkjarfulltrúum og á skrifstofunni er hægt að fá ýmiss konar aðstoð og ráðgjöf sem snýr að samskiptum og skólasamfélaginu. Hægt er að fá allar nánari upplýsingar um SAMFOK á vefsíðunni www.samfok.is og sömuleiðis á Facebook-síðunni SAMFOK.

Höfum í huga að skólinn er vinnustaður barnanna tíu mánuði ársins. Með því að vera virkir þátttakendur í námi barnanna okkar og taka þátt í skólastarfinu, aukum við líkurnar á að barnið okkar upplifi námið og skólann á jákvæðum nótum og sjái heimilið og skólann sem heild, en ekki sem andstæða póla. Við þurfum að vera meðvituð um hlutverk okkar sem skólaforeldrar og að við séum einn hlekkur í stórri keðju sem sameinar skóla, foreldra og nemendur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×