Einfalt og hollt fyrir börnin

Fréttablaðið Fastir pennar 08. september 2010 06:00
Einfalt og hollt fyrir börnin
Steinunn Stefánsdóttir skrifar:
Mörgum foreldrum þykir matur grunnskólabarna einhæfur og ekki nægilega hollur. Ljóst er að staðan er þröng því meðan verð á matvælum hækkar þá eru verðskrár í skólamötuneytum óbreyttar. Sýnt er því að útsjónarsemi þarf til að viðhalda gæðum þess matar sem börnunum er boðinn.

Skólamatur er tiltölulega nýr af nálinni í íslensku samfélagi. Ekki eru nema hálfur annar áratugur síðan að heitur matur var óþekktur með öllu í grunnskólum en nú þykir það sjálfsögð þjónusta að skólabörn eigi þess kost að fá mat í skólanum. Erfitt efnahagsástand hefur síður en svo dregið úr kröfunni um næringarríkan mat í skólum enda þörfin á staðgóðum mat enn brýnni í slíku árferði.

Vitað er að mataræði og neysluvenjur allar hafa veruleg áhrif á heilsu. Þegar barni er gefið að borða er þannig ekki bara verið að seðja hungur og næra það fyrir daginn heldur er líka verið að leggja inn til framtíðar, ala upp neytanda. Sá matur sem börnum er boðinn hefur áhrif á það hvernig matarsmekkur þeirra þróast og þar af leiðandi hvernig mat þau munu velja sér þegar þau hljóta sjálf til þess umboð. Þannig geta matarvenjur í æsku haft verulega áhrif á heilsu, ekki bara á barnsaldrinum heldur um alla framtíð.

Sigurveig Káradóttir, sem hefur ásamt Sigurrós Pálsdóttur og Margréti Gylfadóttur gert skoðun á mötuneytum grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu síðustu misseri, telur að víða sé pottur brotinn í matarmálum grunnskólabarna. Í úttekt þeirra kemur fram að unnar matvörur, svo sem bjúgu, naggar og pakkasúpa, eru víða uppistaðan í þeim mat sem börnum er boðinn.

Þetta er óásættanlegt með öllu. Slíkur matur er iðulega rýr að næringu, auk þess sem hann inniheldur gjarnan ótæpilegt magn af salti og öðrum aukefnum sem jafnvel eru beinlínis skaðleg. Svoleiðis mat á ekki að bjóða börnum í uppeldisstofnunum.

Undir þetta taka margir matráðar í skólum. Meðal annars Guðfinna Guðmundsdóttir matráður í Engidalsskóla í Hafnarfirði. Að hennar mati á hollur og vandaður matur að vera partur af skólastarfi og hún bendir á að börnin þurfi að læra að borða slíkan mat.

Guðfinna og Sigurveig eru sammála um að ekki muni líða á löngu þar til matarmál grunnskólabarna verði tekin til gagngerrar skoðunar. Undir það sjónarmið er hér tekið. Niðurstaðan verður vonandi sú að sem flestum börnum muni standa til boða hollur og góður matur sem framreiddur er á einfaldan en lystugan hátt. Slíkur matur þarf nefnilega ekki að vera dýrari en sá forunni matur sem nú er boðinn svo víða.

Þótt ekki megi gleyma því að foreldrar bera höfuðábyrgð á því að ala upp og næra börn sín þá er það svo að matmálstími í skóla og leikskóla er hluti þess uppeldisstarfs sem þar fer fram. Þess verður að sjá stað bæði hvað varðar þann mat sem neytt er og einnig í umgjörðinni sem börnunum er boðin við að matast.


Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvæðing er mesta hættan

Ögmundi Jónassyni tókst með haldbærum rökum í Kastljóssþætti í vikunni að sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar þjóðir eiga fleiri eða aflmeiri bíla miðað við fólksfjölda en Íslendingar. Það á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gæti þótt mikil eftirsjá að öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og þar um landið...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigð kærasta vill tilbreytingu

Öll erum við með okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfræðing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstaða um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaaflið Samstaða, undir forystu Lilju Mósesdóttur alþingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Það er undur stutt síðan málið sýndist afgreitt. Þetta með markaðina og ríkið. Markaðir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 08:00

Ögmundur og íhaldið

Sagnfræðingar tala um að stéttastjórnmál hafi leyst sjálfstæðisstjórnmál af hólmi árið 191...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 06:00

Kostnaður krónu

Samkeppniseftirlitið birti í síðustu viku skýrslu sína um verðþróun og samkeppni á dagvöru...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Einfalt og hollt fyrir börnin