Einbeittur ásetningur eða framið í ákafri geðshræringu?

Vísir Innlent 05. september 2010 10:51
Friðrik Smári Björgvinsson, Jón H.B Snorrason og Björgvin Björgvinsson hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu á blaðamannafundinum í gær þar sem tilkynnt var að játning lægi fyrir.
Friðrik Smári Björgvinsson, Jón H.B Snorrason og Björgvin Björgvinsson hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu á blaðamannafundinum í gær þar sem tilkynnt var að játning lægi fyrir. Mynd/Fréttastofa Stöðvar 2
Þorbjörn Þórðarson skrifar:

Morðvopnið sem Gunnar Rúnar Sigurþórsson notaði til að bana Hannesi Þór Helgasyni er enn ófundið. Í gær fannst fatnaður í smábátahöfninni í Hafnarfirði sem talið er að tilheyri Gunnari Rúnari.

Á blaðamannafundinum í gær þar sem lögreglan greindi frá því að Gunnar Rúnar sem setið hefur í gæsluvarðhaldi hefði játað að hafa banað Hannesi Þór Helgasyni vildi lögreglan ekki greina frá því hvort rannsókn málsins hefði leitt í ljós einhverjar undirbúningsathafnir af hálfu Gunnars Rúnars í aðdraganda verknaðarins, en slíkar athafnir eru til þess fallnar að styrkja ásetning. Þess vegna liggur í raun ekkert fyrir um hvort hann hafi skipulagt morðið með einhverjum fyrirvara eða hvort það hafi verið framið í geðshræringu. Lögregla vildi ekki gefa upp ástæður Gunnars Rúnars, en greindi frá því að gerð yrði krafa um geðheilbrigðisrannsókn. Lögreglan er búin að tímasetja verknaðinn og telur að morðið hafi verið framið milli kl. 5 og 10 að morgni sunnudagsins 15. ágúst síðastliðins.

Leit að morðvopninu stendur enn yfir og hefur lögreglan notið aðstoðar kafara frá sérsveit ríkislögreglustjóra við leitina í smábátahöfninni í Hafnarfirði þar sem Gunnar Rúnar segist hafa losað sig við morðvopnið. Í gær fannst fatnaður og verður staðreynt hvort hann sé meðal þess hann fleygði frá sér í höfnina. Björgvin Björgvinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að lögreglan hafi nákvæmar hugmyndir um tegund morðvopnsins. Aðspurður vill hann ekki gefa upp hvers konar hnífur var notaður, en eins og komið hefur fram voru djúp stungusár á líkama hins látna sem benda til þess að langt eggvopn hafi verið notað, hnífur af einhverju tagi.

Gunnar Rúnar Sigurþórsson, sem játað hefur á sig sök, er ekki lengur í einangrun, en hann er þó í gæslu og ekki meðal annarra fanga á Litla Hrauni. En hvers vegna var honum á sínum tíma sleppt að lokinni fyrstu yfirheyrslu? „Við viljum undirstrika að sönnunarbyrði í sakamálum er hjá lögreglu og ákæruvaldi og á þeim tímapunkti voru ekki skilyrði til að halda honum handteknum eða í gæsluvarðhaldi. Rannsóknin var ekki komin á þann stað þá," sagði Jón H.B Snorrason, aðstoðarlögreglustjóri og saksóknari hjá lögreglunni.

Morðið á Hannesi Þór Helgasyni var sérstaklega hrottafengið og á sér líklega fá fordæmi í réttarsögunni. Á fjórða tug lögreglumanna hafa komið að rannsókninni og hafa hátt í hundrað einstaklingar verið yfirheyrðir. Eins og komið hefur fram var sakborningurinn afar hugfanginn af kærustu hins látna og var æskuvinur hennar. Þá þekkti hann til heima hjá Hannesi í Hafnarfirði því hann var reglulega með Hannesi og kærustunni og hafði verið gestkomandi á heimili Hannesar.







Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 12. feb. 2012 20:15

Fyrri stofnfundur Breiðfylkingarinnar haldinn í dag

Í dag var haldinn stofnfundur Breiðfylkingarinnar sem fulltrúar Hreyfingarinnar, Frjálslyn...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 19:45

Rúmur meirihluti vill Ólaf Ragnar áfram

Rúmur meirihluti þjóðarinnar vill að Ólafur Ragnar Grímsson gefi aftur kost á sér í forset...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 18:46

Flestir vildu að Blár Ópal myndi vinna: "Leiðinlegt fyrir sigurlagið“

"Það er skrýtið að þetta hafi ekki verið skýrara,“ segir Ingólfur Þórarinsson, eða I...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 17:26

Hundur fastur í neti - tækjabíll frá slökkviliðinu kallaður til

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um hund sem væri fastur í netadræsum við Ægisg...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 13:51

Tæplega 80 þúsund atkvæði greidd í Eurovison

Alls voru greidd 79 þúsund atkvæði í Eurovision keppninni sem var sýnd á RÚV í gærkvöldi. ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:53

Beit lögregluþjón

Karlmaður beit lögregluþjón til blóðs í morgun. Maðurinn var stöðaður á Laugaveginum rétt ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:45

Huglausa ljónið féll niður hlera í miðri sýningu

"Samkvæmt öllum myndum og rannsóknum ætti hann að sleppa ótrúlega vel,“ segir leikar...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:19

Opið í Böggvistaðafjalli og í Oddsskarði

Lokað er í Bláfjöllum í dag vegna veðurs en þar er bæði hvasst og Blautt. Sömu sögu er að ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 09:32

Settist upp í lögreglubíl og braut bílrúðu

Ölvaður og æstur maður var handtekinn við krá í Hafnarfirði eftir að hann braut rúðu í lög...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 22:32

Mundu eftir mér sigraði í Evróvisjón

Það var lagið Mundu eftir mér sem sigraði í Evróvisjón í kvöld. Það var Greta Salóme Stefá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 20:00

Rokkarar heimtuðu hættulegt rauðvín

Nokkrir aðdáendur hljómsveitarinnar Motörhead mótmæltu ákvörðun vínbúðarinnar um að leyfa ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 19:30

Fórnarlambið á Þórshöfn með mikla höfuðáverka

Rúmlega sjötugur karlmaður liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild sjúkrahússins á Akureyri ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 18:30

Óvíst hvaða lög sprengjumaðurinn braut

Karlmaður á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið sprengjunni fyrir skammt frá Stjórnarr...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 17:35

Búist við hríðarveðri seint í kvöld

Það hvessir af suðri seint í köld og hlýnar heldur. Á hæstu fjallvegum um landið vestanve...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:39

Fimm sagt sig af lista Kópavogsbúa vegna óánægju

Fimm hafa sagt sig úr Y-lista Kópavogsbúa eftir að Rannveig Ásgeirsdóttir myndaði meirihlu...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:13

Útigangsmenn hrelldu börn á Klambratúni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um að útigangsmenn hefði verið ofstopafull...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:06

Ætlaði að slökkva á brunaboðanum en ræsti innbrotsboðann í staðinn

Hann var óheppinn iðnaðarmaðurinn sem var að störfum á Kleppsspítala í morgun. Lögreglu bá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:02

Skyndihjálparmaður Íslands bjargaði dóttur sinni

Rauði kross Íslands hefur valið Gísla Örn Gíslason sem skyndihjálparmann ársins 2011 fyrir...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:28

Játning í sprengjumálinu

Karlmaður á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið sprengju fyrir skammt frá Stjórnarráði...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 10:45

Braust inn til manns á áttræðisaldri og misþyrmdi hrottalega

Rúmlega sjötugur karlmaður liggur þungt haldinn á sjúkrahúsinu á Akureyri eftir alvarlega ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 13:30

Aukin þyngd sjúklinga hækkar kostnað vegna lyfja

Aukin þyngd sjúklinga hefur hækkað kostnað Landspítalans vegna lyfja síðustu misseri. Muna...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:29

Karlmaður stunginn og svo færður í fangageymslu

Karlmaður var stunginn í nótt í Hafnarfirði og handtók lögreglan fjóra menn vegna málsins....  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:09

Ákvörðun um gæsluvarðhald tekin í dag

Lögreglan tekur ákvörðun um það síðar í dag hvort að krafist verði gæsluvarðahalds yfir ka...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 11:47

112-dagurinn haldinn í dag - vélmenni og sprengjubíll í Smáralindinni

112-dagurinn verður haldinn um allt land í dag. Markmið dagsins er að kynna neyðarnúmerið ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:56

Færð og aðstæður: Hálka víða á Suðurlandi

Hálkublettir eru á Hellisheiði og Þrengslum en snjóþekja á Lyngdalsheiði, en hálkublettir ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:45

Fíkniefnasali á Menntavegi og grillaðir unglingar í Gvendargeisla

Lögreglan hafði afskipti af fjórum unglingum við Gvendargeisla um klukkan hálf tólf í gærk...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:00

Bíða Alþingis og fresta innheimtu

Kristbjörg Stephensen borgarlögmaður segir í minnisblaði til borgarráðs að borgin verði að...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:30

Óttast að verðmætar minjar endi í bræðslu

Safnaráð tók skeiðar og skart úr silfri af breskum kaupmanni sem hugðist fara með góssið ú...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:00

Eftirlitsstofnun vill kröfur í lög fyrir marslok

Íslensk stjórnvöld telja að nýtt frumvarp um starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. (RÚV) muni inn...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 07:00

Frumvarp um barnalög gamaldags

Anja Cordes, lögfræðingur á sviði fjölskylduréttar í Danmörku, segir í viðtali við Fréttab...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / Einbeittur ásetningur eða framið í ákafri geðshræringu?