Trúaðir segja nei

Fréttablaðið Fastir pennar 23. mars 2010 06:00
Ólafur Þ. Stephensen
Ólafur Þ. Stephensen
Ólafur Þ. Stephensen skrifar:

Viðbrögð Vinstri grænna við hugmyndum, sem Fréttablaðið sagði frá í síðustu viku, um að byggð verði upp á Keflavíkurflugvelli miðstöð hollenzks fyrirtækis, sem leigir út óvopnaðar herþotur til þátttöku í heræfingum, hafa verið býsna eindregin. Fyrirtækið er einkarekið og tengist hernaði. Hvort tveggja dugir til að ýta á takka á Vinstri grænum, sem framkallar strax einróma, þvert nei.

Vinstri grænir telja því að ekki þurfi að ræða eða skoða málið frekar. Fyrirtækið ECA Programs sé bara vont einka- og herfyrirtæki.

En kannski vilja einhverjir aðrir afla sér upplýsinga áður en þeir ákveða sig. Fyrirtækið vill fjárfesta hér á landi fyrir verulegar upphæðir. Það vill skapa um 200 störf, flest fyrir vel menntaða einstaklinga. Á Suðurnesjum er talsverð þekking og reynsla af þjónustu við flugstarfsemi eins og þá, sem fyrirtækið hyggst reka, og hún hentar því vel atvinnulausum Suðurnesjamönnum.

Starfsemi fyrirtækisins er ekki hernaðarstarfsemi, enda eru þotur þess óvopnaðar og starfsmennirnir bera ekki vopn. ECA Programs er hins vegar eitt af ótalmörgum fyrirtækjum á Vesturlöndum sem þjónusta hernaðaryfirvöld. Fyrirtækið vinnur eingöngu fyrir heri Atlantshafsbandalagsins og vinveittra ríkja. Ástæðan fyrir því að hernaðaryfirvöld í NATO-ríkjunum sýna starfsemi þess áhuga, er að hún gerir þeim kleift að draga úr kostnaði.

Vinstri grænir eru alveg á móti veru Íslands í hernaðarbandalaginu NATO, eins og þeir ítrekuðu fyrir helgina. Það breytir ekki því að meirihluti þjóðarinnar telur Ísland eiga heima í bandalaginu. Og af hverju ætti Ísland þá ekki að hýsa fyrirtæki, sem tengist starfsemi NATO?
Hér á landi eru ótal fyrirtæki, sem um árabil þjónustuðu bandaríska herinn á Keflavíkurflugvelli og eru að því leyti ekkert frábrugðin ECA. Eru það vond fyrirtæki?

Íslenzk sprotafyrirtæki hafa sum hver þróað vörur, sem nýtast í hernaði. Prímex á Siglufirði framleiðir til að mynda sáraumbúðir með kítósani, unnu úr rækjuskel, sem bandaríski herinn notar. Hafmynd í Kópavogi framleiðir dvergkafbáta, sem eru notaðir í hernaði. Gavia-kafbáturinn þjónar til dæmis hlutverki æfingaskotmarks í heræfingum danska flotans. Eru þetta þá líka vond fyrirtæki?

Afstaða Vinstri grænna þarf út af fyrir sig ekki að koma á óvart. Flokkurinn virðist ófær um að taka afstöðu til nýrra atvinnutækifæra út frá öðru en eigin hugmyndafræði. Í trúarhita sínum hafa vinstri grænir þegar afneitað einkaspítala á gamla varnarsvæðinu. Þeir eru sömuleiðis á móti flestum virkjunum og verksmiðjum, sömuleiðis af trúarástæðum. Og í einlægri, kreddufastri trú hefur VG lokað augunum fyrir gjaldmiðilskreppu landsins og telur krónuna duga alveg ágætlega.

Kannski kaus rúmlega fimmtungur þjóðarinnar Vinstri græna einmitt til að segja nei við hugmyndum af þessu tagi. En hvernig vilja þessir kjósendur þá koma Íslandi út úr kreppunni?



Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvæðing er mesta hættan

Ögmundi Jónassyni tókst með haldbærum rökum í Kastljóssþætti í vikunni að sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar þjóðir eiga fleiri eða aflmeiri bíla miðað við fólksfjölda en Íslendingar. Það á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gæti þótt mikil eftirsjá að öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og þar um landið...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigð kærasta vill tilbreytingu

Öll erum við með okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfræðing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstaða um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaaflið Samstaða, undir forystu Lilju Mósesdóttur alþingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Það er undur stutt síðan málið sýndist afgreitt. Þetta með markaðina og ríkið. Markaðir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 08:00

Ögmundur og íhaldið

Sagnfræðingar tala um að stéttastjórnmál hafi leyst sjálfstæðisstjórnmál af hólmi árið 191...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 06:00

Kostnaður krónu

Samkeppniseftirlitið birti í síðustu viku skýrslu sína um verðþróun og samkeppni á dagvöru...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Trúaðir segja nei