Um réttindi fatlaðra

Fréttablaðið Aðsendar greinar 20. mars 2010 06:00
Oddný Mjöll arnardóttir
Oddný Mjöll arnardóttir

Oddný Mjöll Arnardóttir og Þórdís Ingadóttir skrifa um fullgildingu Íslands á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra.

Hinn 21. mars er alþjóðlegur dagur Downs-heilkennis. Á Íslandi eru um 200 einstaklingar sem kljást við aukalitning á 21. litningapari en um 3-4 börn fæðast árlega hér á landi með slíkt litningafrávik. Eitt af baráttumálum þessara einstaklinga er rétturinn til að njóta fullra mannréttinda til jafns við aðra. Það eru því mikil tíðindi að í liðinni viku kynnti Árni Páll Árnason félags- og tryggingamálaráðherra tillögur nefndar sem fjallað hefur um fyrirhugaða fullgildingu Íslands á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fólks með fötlun. Ísland undirritaði samninginn fyrir þremur árum, ásamt viðbótarbókun hans, og er skýrsla nefndarinnar undirbúningur stjórnvalda að fullgildingu samningsins.

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fólks með fötlun er tímamótasamningur á sviði mannréttinda fyrir margra hluta sakir. Aldrei hafa samningaviðræður um mannréttindasamning tekið jafn skamman tíma. Samningaviðræðurnar voru einnig merkilegar fyrir þær sakir að aldrei fyrr hefur verið haft jafn ríkt samstarf við grasrótarsamtök við gerð mannréttindasáttmála. Á þeim tímamótum þegar opnað var fyrir undirskriftir ríkja þann 30. mars 2007 var þar slegið nýtt met á vettvangi alþjóðalaga, en aldrei hafa jafn mörg ríki undirritað mannréttindasáttmála þegar við opnun hans til undirritunar.

Hin mikla sátt sem ríkir um efni sáttmálans kemur til af ýmsu. Ein helsta ástæðan er sú að sáttmálinn byggir á eldri mannréttindasáttmálum. Flest þau réttindi sem hann veitir eru þegar tryggð í öðrum sáttmálum og er sáttmálanum því ekki ætlað að skapa ný réttindi. Réttinn til lífs, bann við ómannlegri og vanvirðandi meðferð, bann við mismunun og réttinn til tjáningarfrelsis hafa ríki t.d. þegar skuldbundið sig að veita með aðild sinni að alþjóðasamningi Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi frá árinu 1966. Þá hafa ríki t.d. skuldbundið sig til að veita rétt til menntunar, vinnu og heilsu með aðild sinni að Sáttmála Sameinuðu þjóðanna um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi frá árinu 1966. Það sem skilur að með Samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fólks með fötlun og hinum eldri mannréttindasamningum er að í hinum nýja eru þessi réttindi útfærð mun nánar og aðlöguð að veruleika fatlaðs fólks í því skyni að veita virka og raunhæfa réttarvernd. Þannig er t.d. tiltekið að í tjáningarfrelsi felist að ríkjum beri skylda til að viðurkenna og stuðla að notkun táknmáls og blindraleturs og að í rétti til menntunar felist réttur til menntunar án aðgreiningar. Rétturinn til menntunar án aðgreiningar er meðal mikilvægustu ákvæða sáttmálans en hann felur í sér þá meginreglu að menntun fatlaðra barna fari fram innan almennra skóla og leggur þær skyldur á herðar ríkjum að aðlaga skólaumhverfið og veita stuðning í samræmi við þarfir viðkomandi barns. Einnig má nefna að sáttmálinn kveður á um rétt fatlaðra til að lifa sjálfstæðu lífi án aðgreiningar í samfélaginu sem m.a. felur í sér að ríkinu beri að tryggja fötluðum tækifæri til að velja sér búsetustað og með hverjum þeir búa. Hinum nýju efnismeiru ákvæðum er þannig ætlað að taka af allan vafa um framkvæmd samningsins í landsrétti og tryggja betur réttarstöðu viðkomandi einstaklinga. Valfrjáls bókun við samninginn heimilar einstaklingum eða hópi einstaklinga sem telja sig þolendur brots á ákvæðum samningsins að kæra mál til alþjóðlegrar eftirlitsnefndar um framkvæmd samningsins, án tillits til þess hvaða flokki réttinda brotið tilheyrir.

Nú í dag hafa 144 ríki undirritað Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fólks með fötlun og 82 ríki fullgilt hann og með því skulbundið sig að þjóðarétti að veita fötluðum einstaklingum þau réttindi sem samningurinn kveður á um. Til þess að af fullgildingu geti orðið þurfa landslög viðkomandi ríkis að tryggja borgurum öll þau réttindi sem sáttmálinn kveður á um. Í hinni nýútgefnu skýrslu nefndarinnar er gerð grein fyrir nauðsynlegum aðgerðum til að fullgilda hann sem fela meðal annars í sér heildarendurskoðun á lögum um málefni fatlaðra, auk ýmissa annarra lagabreytinga. Þá leggur nefndin til að athugaðir verði möguleikar á stofnun innlendrar þjóðbundinnar mannréttindastofnunar sem gæti haft með höndum sjálfstætt eftirlit til að fylgjast með framkvæmd samningsins hér á landi. Samkvæmt tillögum nefndarinnar verður skýrsla hennar nú send hagsmunaaðilum til umsagnar. Afar mikilvægt er að tekið verði tillit til þeirra umsagna á lokastigum við undirbúning fullgildingar Íslands á þessum mikilvæga alþjóðasamningi.
Oddný Mjöll er prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Þórdís er dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík.


Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Menntun má tæta

Tilraunir sveitarfélaga til að treysta fjárhagsstöðu sína og draga úr útgjöldum hafa falis...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Meirihlutinn ræður

Fimmtudaginn 12. jan. sl. varð áhugaverð uppákoma í bæjarráði Kópavogs. Þá ákvað bæjarráð ...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Brotin fjölskylda eða betra líf?

Að gifta sig er hamingja en að skilja er óhamingja. Eða hvað?...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Vernd barna gegn kynferðislegum glæpum

Það er dapurleg staðreynd að fjöldi barna í heiminum í dag verður fyrir kynferðislegu ofbe...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Hrunið 2016

Það er haustið 2016 og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er aftur kominn til Íslands. Í þetta sin...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 14:00

Vísindi, veiðar og mannréttindi

Hvernig kerfi eiga Íslendingar að nota við fiskveiðar? Á undanförnum árum hafa verið gerða...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 06:00

Ruglið og reikningsgetan

Fjórði hver drengur, sem útskrifast úr grunnskóla, er sagður ekki kunna að lesa. Enn stærr...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 06:00

Má gera okkur öllum upp skoðanir?

Hæfileikafólk á Íslandi er álíka margt og í þrjú hundruð þúsund manna borg annars staðar í...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 03:13

Motörhead gegn íslenska ríkisbákninu

Á hverjum degi flytja fimm manns frá Íslandi til þess að hefja nýtt líf í öðru landi. Efti...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Opið bréf til Ögmundar Jónassonar

Á Íslandi er skilnaðartíðni há en lagaumhverfið hefur ekki tekið mið af því á Íslandi í sa...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Það er ljótt að skilja útundan herra borgarstjóri

Ég skora á borgarstjórann í Reykjavík að draga til baka ákvörðun varðandi niðurfellingu ne...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Breytt framtíðarsýn lesblindra

Flestar skólabyggingar á Íslandi í dag eru með þeim hætti að fatlaðir eiga auðvelt með að ...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Til of mikils mælst?

Þegar ógnvekjandi tölur um treglæsi unglinga birtust sl. haust tók ég mig til og skrifaði ...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Arðurinn – 44:2 fyrir LÍÚ

Hagstofa Íslands birti fyrir nokkrum dögum nákvæm gögn um afkomu sjávarútvegsins árið 2010...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Lendandi á Hólmsheiði í 96-98% tilvika – 95% er nóg

Háskólinn í Reykjavík (HR) og talsmenn flugvallar í Vatnsmýri (flugvallarsinnar) stóðu fyr...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Sæll Sighvatur Björgvinsson

Við eigum sameiginlegt áhugamál sem eru íslenskir grunnskólar. Af skrifum þínum má þó ætla...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Heggur sá er hlífa skyldi

Ekki alls fyrir löngu stóð Skóla- og frístundaráð Reykjavíkur (áður Menntaráð) frammi fyri...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Hvað hefur komið fyrir litla Ísland?

Ég var agndofa í lok vinnudags í byrjun árs....  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Ávöxtun (tap) lífeyrissjóða

Nýlega er komin út skýrsla rannsóknarnefndar um lífeyrissjóði. Mikið hefur verið rætt um h...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

PIP brjóstapúðamálið – um staðreyndir og villandi málflutning

Liðlega 400 íslenskar konur fengu brjóstafyllingar frá franska framleiðandanaum Poly Impla...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 14:30

Hvað með ristilkrabbamein?

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra ritar grein í Fréttablaðið þann 4. febrúar sl. Þar ...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 09:21

Umræða um tap lífeyrissjóðanna á villigötum

Í nýútkominni rannsóknarskýrslu er fjallað um hvernig íslensku lífeyrissjóðunum vegnaði í...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Endurskoðun stjórnarskrárinnar

Nú liggja fyrir tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á stjórnarskrá íslenska lýðveldisins...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Menntun ábyrgra stjórnenda – ábyrgð háskóla

Leiðtogar dagsins í dag, hvort sem er í stjórnmálum eða viðskiptalífi, standa frammi fyrir...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Velferð barna í forsjárdeilum

Karvel Aðalsteinn Jónsson skrifar grein í Fréttablaðið 7. febrúar þar sem hann spyr mig í ...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Slys aldarinnar við Hringbraut eða sóun í Fossvogi?

Guðjón Baldursson læknir skrifaði í Fbl. og rökstuddi að Háskólasjúkrahús (HSH) við Hringb...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Val um skólastefnu – já takk!

Tilefni þessarar greinar er að vekja athygli foreldra 6 ára barna, sem nú eru að innrita b...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 13:00

Konur og samkeppnishæfni Evrópu

Efnahagssamdráttur, einkum í Evrópu, hefur verið efst á baugi nær allra alþjóðlegra funda ...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Sagan um neysluhléið

Á góðæristímum Íslands voru miklir erfiðleikar við að manna leikskólana. Það var næga vinn...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Veist þú betur Ögmundur ?

Þann 10. febrúar n.k. mun Félag um foreldrajafnrétti standa fyrir ráðstefnu um fyrirhugaða...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Borgin mismunar í framlögum til félagsstarfs

Borgaryfirvöld styðja að mörgu leyti vel við bakið á frjálsri félagastarfsemi barna og ung...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Að fermast upp á Faðirvorið

Þær fréttir berast úr íslenska grunnskólakerfinu að fjórði hver drengur sem útskrifast get...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Endurskoðun eða uppstokkun?

Eftir að hafa unnið að endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins í tæpa fjóra mánuði skilaði ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 15:00

Áskorun réttarkerfis og samfélags

Virðingin sem mér var sýnd! Ég bar ekki virðingu fyrir sjálfri mér og að mér skyldi sýnd þ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 12:54

Dagur leikskólans

Í dag er haldinn hátíðlegur í fimmta sinn Dagur leikskólans. Fyrir rúmum 60 árum síðan eða...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Já á landsbyggðinni

Löng hefð er fyrir því að þjónustuver Já og forvera fyrirtækisins séu staðsett bæði á land...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 12:57

Stjórnvöld biðjist afsökunar

Það verður að teljast sigur þegar umboðsmaður skuldara tók málstað lánþega í útvarpsþætti ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Sujud er orðin þriggja ára

Hún fæddist í Zeitun á Gazaströndinni og tilheyrir Samuni ættinni. Fyrir þremur árum fæddi...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Erum við verri en annað fólk?

Ég hef fengið tækifæri til að búa í nokkrum ólíkum löndum og kynnast öðrum þjóðum. Í grófu...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Skýrslu Hagfræðistofnunar verulega ábótavant

Nýverið birti Hagfræðistofnun Háskólans skýrslu sína um tillögur Hagsmunasamtaka heimilann...  

Meira
Aðsendar greinar 05. feb. 2012 12:09

Yfirlýsing frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni

Í tilefni þess sem kemur fram í lífeyrissjóðaskýrslunni að Baugur Group hf. hafi borið áby...  

Meira
Aðsendar greinar 05. feb. 2012 06:00

Æskilegt að velja heilkornavörur

Nýlega voru birtar niðurstöður úr landskönnun á mataræði sem fram fór á árunum 2010-2011. ...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 11:00

Spornum við útbreiðslu krabbameina

Alþjóðlegur dagur baráttu gegn krabbameinum er í dag, 4. febrúar, haldinn ár hvert samkvæm...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Hvers vegna er verið að halda upplýsingum um alvarlegar aukaverkanir HPV –bóluefnanna frá fólki?

Það er greinilegt á öllu að það þarf fleiri menn en þetta umdeilda lið þarna frá Landlækni...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Perlu í Perluna

Þegar Perlan var byggð efst á Öskjuhlíðinni um 1990 voru aðrir tímar. Hitaveitan var ekki ...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Hvað er „Liberal Democrats“ og hvað mundi það þýða fyrir íslenskt samfélag

Ég heyrði talað um „Liberal Democrats“ og velti fyrir mér hvað þetta væri á ís...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Eru konur konum verstar?

Fimmtudaginn 26. janúar sl. veitti Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) Katrínu Olgu Jóhann...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 23:08

Harður árekstur

Einn eftirminnilegasti kennari sem ég hef haft í gegnum tíðina er Þorsteinn Gylfason heiti...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 14:45

Áætlun um efnahagslegt öryggi

Við forsvarsmenn sex vinstriflokka á Norðurlöndunum krefjumst þess að reglur verði settar ...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 08:00

Nýr Landspítali við Hringbraut: Nei, takk!

Þegar músin tísti vöknuðu ljónin í skóginum. Annar höfundur þessarar greinar skrifaði tvær...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Um réttindi fatlaðra