Slær í gegn á Netinu eftir 40 ára brandarasöfnun 20. mars 2010 06:00 brandarakall Brandarar Ragnars á Netinu hafa vakið mikla athygli og hrósinu hreinlega rignir yfir hann.Mynd/Hilmar Bragi „
Ég er með ofboðslegt brandaraminni,“ segir gleðigjafinn og yfirvélstjórinn Ragnar Rúnar Þorgeirsson. Ragnar byrjaði að segja brandara á myndböndum á samskiptasíðunni Facebook í vikunni og vakti strax athygli. Brandararnir hafa gengið manna á milli á Netinu og vakið mikil viðbrögð. Svo mikil að Ragnar segist vera rasandi hissa. „Fólk segir að brandararnir séu snilld og aðrir biðja um meira,“ segir hann og hlær. „Einn sagði að ég væri staðgengill Spaugstofunnar.“ En hvernig byrjaði þetta? „Ég var búinn að vera mana mig upp að segja brandara í vélina í nokkrar vikur,“ rifjar Ragnar upp. „Svo lét ég mig hafa það að prufa einn. Það vakti svo mikil viðbrögð að ég átti ekki til orð, svo kom ég með annan og er kominn með fimm brandara í dag. Ég held að sprengjan hafi orðið vegna þess að fyrsti brandarinn var svo góður. Það kom þessu öllu af stað.“ Ragnar hefur að eigin sögn alltaf verið mikill brandarakall og á fulla möppu af bröndurum. „Ég er búinn að safna í 35 eða 40 ár – og ekki bara í möppu, ég er líka með dós sem ég set alltaf brandaramiða í. Svo er ég með þetta í kollinum,“ segir hann. „Ég hef bæði skrifað niður og munað – ég man þá aðallega. Ég hef alla tíð verið þannig að ef ég man eftir brandara, þá segi ég hann á staðnum. Þegar á við.“ Ragnar býr í Grindavík og er yfirvélstjóri á Hans Jakobi GK 150. Hann rær frá Sandgerði og stundar sæbjúgnaveiðar. Hann játar að brandararnir séu vinsælir um borð. „Þegar við erum að spjalla saman þá man ég oft eftir brandara og fleygi honum fram,“ segir Ragnar. „Það hefur fallið í góðan jarðveg.“ Ragnar ætlar að halda áfram að setja brandara á Netið, enda rignir yfir hann hrósi frá fólki um allt land. „Ég fékk kveðju frá sjúkraflutningamönnum á Egilstöðum. Þeir báðu um meira og sögðu að ég hefði bjargað deginum,“ segir hann. „Ég er mest ánægður með það geta glatt einhvern. Í öllu þessu tali um kreppu er ljós í myrkrinu að koma með svona.“ Áhugasamir lesendur geta slegið nafn Ragnars inn í leit á Facebook og þá ætti síðan hans að birtast. atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lífið Talay Riley stunginn til bana í Lundúnum Tónlist Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Lífið „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Lífið Fleiri fréttir Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Sjá meira