Íslenskur þjóðfundur veitir metsöluhöfundi innblástur

Vísir Innlent 20. mars 2010 19:00
Bók Honoré um hæglætisstefnuna, Lifðu lífinu hægar, hefur verið þýdd á yfir þrjátíu tungumálum.
Bók Honoré um hæglætisstefnuna, Lifðu lífinu hægar, hefur verið þýdd á yfir þrjátíu tungumálum.
Þorbjörn Þórðarson skrifar:

Kanadíski metsöluhöfundurinn Carl Honoré, höfundur bóka sem þýddar hafa verið á yfir þrjátíu tungumálum, ætlar að gera íslensku hugmyndinni um þjóðfund góð skil í nýjustu bók sinni. Honoré mætti að eigin frumkvæði á síðasta þjóðfund sóknaráætlunar fyrir Ísland, sem fjallaði um tækifæri fyrir Reykjavík og haldinn var í Rimaskóla í dag.

Markmið þjóðfundar í Reykjavík var að finna út hvernig mætti efla atvinnu- og verðmætasköpun í Reykjavík. Hundrað og tuttugu manns tóku þátt í þjóðfundinum sem var í Rimaskóla í dag og var þar blanda af einstaklingum úr úrtaki og öðrum sem voru gestir stöðu sinnar vegna.

Kanadíski metsöluhöfundurinn Carl Honoré, höfundar bókarinnar Lifðu lífinu hægar sem selst hefur í milljónum eintaka og verið þýdd á yfir þrjátíu tungumálum, var gestur á þjóðfundinum.

Honoré segir að hugmyndin um þjóðfund sé alveg ný fyrir sér. Hann segir að sér finnist merkilegt að óbreyttir borgarar geti hist og rætt hugmyndir með menntamálaráðherra, lögreglustjóranum og fleiri háttsettum. Honoré segir að hugmyndin gæti orðið fyrirmynd fyrir aðrar þjóðir sem vilji endurhugsa hugmyndir sínar um lýðræðið sjálft. Hann segist ekki þekkja nein fordæmi þess að hugmyndin hafi verið virkjuð með sama hætti neins staðar í heiminum og segir að hann muni skrifa um þjóðfundinn í Reykjavík í nýjustu bók sinni.





Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 12. feb. 2012 20:15

Fyrri stofnfundur Breiðfylkingarinnar haldinn í dag

Í dag var haldinn stofnfundur Breiðfylkingarinnar sem fulltrúar Hreyfingarinnar, Frjálslyn...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 19:45

Rúmur meirihluti vill Ólaf Ragnar áfram

Rúmur meirihluti þjóðarinnar vill að Ólafur Ragnar Grímsson gefi aftur kost á sér í forset...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 18:46

Flestir vildu að Blár Ópal myndi vinna: "Leiðinlegt fyrir sigurlagið“

"Það er skrýtið að þetta hafi ekki verið skýrara,“ segir Ingólfur Þórarinsson, eða I...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 17:26

Hundur fastur í neti - tækjabíll frá slökkviliðinu kallaður til

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um hund sem væri fastur í netadræsum við Ægisg...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 13:51

Tæplega 80 þúsund atkvæði greidd í Eurovison

Alls voru greidd 79 þúsund atkvæði í Eurovision keppninni sem var sýnd á RÚV í gærkvöldi. ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:53

Beit lögregluþjón

Karlmaður beit lögregluþjón til blóðs í morgun. Maðurinn var stöðaður á Laugaveginum rétt ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:45

Huglausa ljónið féll niður hlera í miðri sýningu

"Samkvæmt öllum myndum og rannsóknum ætti hann að sleppa ótrúlega vel,“ segir leikar...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:19

Opið í Böggvistaðafjalli og í Oddsskarði

Lokað er í Bláfjöllum í dag vegna veðurs en þar er bæði hvasst og Blautt. Sömu sögu er að ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 09:32

Settist upp í lögreglubíl og braut bílrúðu

Ölvaður og æstur maður var handtekinn við krá í Hafnarfirði eftir að hann braut rúðu í lög...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / / Íslenskur þjóðfundur veitir metsöluhöfundi innblástur