Dæmi Íslands má ekki endurtaka 20. mars 2010 05:00 Ráðamenn funda Dominique Strauss-Kahn, framkvæmdastjóri AGS, ræðir við Jean Claude Trichet, seðlabankastjóra Evrópu, á ráðstefnu framkvæmdastjórnar ESB í gær.Fréttablaðið/AP „
Öll erum við sammála um að bankakreppa á við kreppuna á Íslandi megi ekki koma upp aftur,“ sagði Dominique Strauss-Kahn, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS), í ræðu sinni á ráðstefnu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB), í gær. Ráðstefnan fjallaði um hvernig koma mætti á regluverki áfallastjórnunar á sameiginlegum fjármálamarkaði sambandsins. Um leið áréttaði Strauss-Kahn að „sorglegt“ dæmi Íslands væri ekki til marks um ágalla þess að fjármálafyrirtæki gætu starfað á einum markaði í mörgum löndum, heldur væri það afsprengi regluverksins sem komið hafi verið á, reglunni um að heimaríki fjalli um mál viðkomandi fyrirtækja. „Vandkvæðin við stjórn heimaríkisins eru mörg, sér í lagi þegar stjórninni fylgja ekki trúverðugar og raunhæfar leiðir til samábyrgðar. Við höfum mátt horfa upp á að þessi háttur ýtir ekki endilega undir samvinnu á erfiðleikatímum,“ sagði hann og kvað ríkjandi fyrirkomulag líka ýta undir vandamál þar sem fjármálafyrirtæki verði „of stór til að þeim verði bjargað.“ Strauss-Kahn hvatti til enn frekari umbóta til að koma á evrópskri áfallastjórnun og regluverki til úrlausna í málefnum fjármálafyrirtækja. Það væri áskorunin sem stjórnmálamenn þyrftu nú að standa undir. „Tækifærinu til úrbóta ætti ekki að sóa eða fresta.“ - óká
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira