Fá enn fjarnám ţótt ráđuneyti vilji skera

Fréttablađiđ Innlent 20. mars 2010 04:00
GrunnskólaNemendur Menntamálaráđuneytiđ ţarf ađ skera niđur framlög og skipar framhaldsskólum ađ hćtta ađ veita áhugasömum grunnskólanemum ađgang ađ kennslu á framhaldsskólastigi. Myndin er af nemendum í samrćmdum prófum í Hlíđaskóla.Fréttablađiđ/GVA
GrunnskólaNemendur Menntamálaráđuneytiđ ţarf ađ skera niđur framlög og skipar framhaldsskólum ađ hćtta ađ veita áhugasömum grunnskólanemum ađgang ađ kennslu á framhaldsskólastigi. Myndin er af nemendum í samrćmdum prófum í Hlíđaskóla.Fréttablađiđ/GVA

Bæði Fjölbrautaskólinn í Ármúla og Verzlunarskóli Íslands halda áfram að kenna grunnskólanemum í fjarnámi þrátt fyrir ákvörðun menntamálaráðuneytisins um að afnema fjárveitingar til þessa liðar frá síðustu áramótum.

Samhliða námi í grunnskóla hafa nemar í efstu bekkjum þar getað stundað nám á framhaldsskólastigi og þannig meðal annars flýtt fyrir framhaldsnáminu þegar þar að kemur.

„Vorið 2008 voru 1.460 grunnskólanemendur í tíunda bekk líka í áföngum í framhaldsskóla, ýmist í fjarnámi eða með því að ganga í viðkomandi framhaldsskóla eða að læra í sínum heimaskóla eftir kennsluáætlun frá einhverjum framhaldsskóla. Sú kennsla sem fór fram á kostnað framhaldsskólanna var felld niður," útskýrir Sölvi Sveinsson, hjá framhaldsskólasviði menntamálaráðuneytisins. Með þessu eigi að spara 120 milljónir króna.

Að sögn Sölva er mikill meirihluti grunnaskólanema í fjarnámi skráður í Fjölbrautaskólann í Ármúla, Verzlunarskóla Íslands eða Verkmenntaskólann á Akureyri.

„Við ákváðum að að skipta ekki um plan á miðjum vetri heldur leyfa þeim krökkum sem voru hjá okkur, og jafnvel fleirum frá sömu skólum, að koma inn eins og þau vildu," segir Sigurlaug Kristmannsdóttir, fjarnámsstjóri Verzlunarskóla Íslands. Breytingin sé sú að nú greiði grunnskólanemendur sama gjald og aðrir fyrir fjarnám. Það sé um 13 þúsund krónur á nemanda fyrir þriggja eininga nám með innritunargjaldi. Þessi upphæð dugi þó alls ekki fyrir kostnaði.

Sigurlaug segir að á þessari önn hafi niðurskurðurinn í fjarnámi Verzlunarskólans í heild aðeins verið fimm prósent en ekki fimmtíu prósent eins og menntamálaráðuneytið mælti fyrir um. Á næstu haustönn verðum við því nánast með ekki neitt fjarnám því þá erum við búin með okkar kvóta," segir hún.

Steinunn Hafstað hjá fjarnámsdeild Fjölbrautaskólans í Ármúla segir að þar hafi menn talið sig verið búna að gera samninga við grunnskólana út skólaárið.

„Þannig að við tókum við nemendum fram á vorið. Síðan á eftir að koma í ljós hvort við fáum greitt fyrir það," segir Steinunn sem kveður líklegt að skólinn innheimti hámarksgjald af grunnskólanemum frá næsta hausti. Það verði allt að þrjátíu þúsund krónur með innritunargjaldi fyrir þriggja eininga nám.

Ingimar Árnason, kennslustjóri fjarkennslu Verkmenntaskólans á Akureyri, segir að þar hafi öll fjarkennsla verið skorinn niður um helming um áramót.

„Og við fórum einfaldlega að skipun ráðuneytisins og innrituðum enga grunnskólanemendur fyrir þessa önn," segir Ingimar. Hann kveður þessa nmendur þó hafa fengið inni í fjarnámsdeildum skólanna sem enn halda því úti.

gar@frettabladid.is



Sunna Hafstađ
Sunna Hafstađ

Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 11. feb. 2012 22:32

Mundu eftir mér sigrađi í Evróvisjón

Ţađ var lagiđ Mundu eftir mér sem sigrađi í Evróvisjón í kvöld. Ţađ var Greta Salóme Stefá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 20:00

Rokkarar heimtuđu hćttulegt rauđvín

Nokkrir ađdáendur hljómsveitarinnar Motörhead mótmćltu ákvörđun vínbúđarinnar um ađ leyfa ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 19:30

Fórnarlambiđ á Ţórshöfn međ mikla höfuđáverka

Rúmlega sjötugur karlmađur liggur ţungt haldinn á gjörgćsludeild sjúkrahússins á Akureyri ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 18:30

Óvíst hvađa lög sprengjumađurinn braut

Karlmađur á áttrćđisaldri hefur játađ ađ hafa komiđ sprengjunni fyrir skammt frá Stjórnarr...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 17:35

Búist viđ hríđarveđri seint í kvöld

Ţađ hvessir af suđri seint í köld og hlýnar heldur. Á hćstu fjallvegum um landiđ vestanve...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:39

Fimm sagt sig af lista Kópavogsbúa vegna óánćgju

Fimm hafa sagt sig úr Y-lista Kópavogsbúa eftir ađ Rannveig Ásgeirsdóttir myndađi meirihlu...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:13

Útigangsmenn hrelldu börn á Klambratúni

Lögreglan á höfuđborgarsvćđinu fékk tilkynningu um ađ útigangsmenn hefđi veriđ ofstopafull...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:06

Ćtlađi ađ slökkva á brunabođanum en rćsti innbrotsbođann í stađinn

Hann var óheppinn iđnađarmađurinn sem var ađ störfum á Kleppsspítala í morgun. Lögreglu bá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:02

Skyndihjálparmađur Íslands bjargađi dóttur sinni

Rauđi kross Íslands hefur valiđ Gísla Örn Gíslason sem skyndihjálparmann ársins 2011 fyrir...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:28

Játning í sprengjumálinu

Karlmađur á áttrćđisaldri hefur játađ ađ hafa komiđ sprengju fyrir skammt frá Stjórnarráđi...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 10:45

Braust inn til manns á áttrćđisaldri og misţyrmdi hrottalega

Rúmlega sjötugur karlmađur liggur ţungt haldinn á sjúkrahúsinu á Akureyri eftir alvarlega ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 13:30

Aukin ţyngd sjúklinga hćkkar kostnađ vegna lyfja

Aukin ţyngd sjúklinga hefur hćkkađ kostnađ Landspítalans vegna lyfja síđustu misseri. Muna...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:29

Karlmađur stunginn og svo fćrđur í fangageymslu

Karlmađur var stunginn í nótt í Hafnarfirđi og handtók lögreglan fjóra menn vegna málsins....  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:09

Ákvörđun um gćsluvarđhald tekin í dag

Lögreglan tekur ákvörđun um ţađ síđar í dag hvort ađ krafist verđi gćsluvarđahalds yfir ka...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 11:47

112-dagurinn haldinn í dag - vélmenni og sprengjubíll í Smáralindinni

112-dagurinn verđur haldinn um allt land í dag. Markmiđ dagsins er ađ kynna neyđarnúmeriđ ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:56

Fćrđ og ađstćđur: Hálka víđa á Suđurlandi

Hálkublettir eru á Hellisheiđi og Ţrengslum en snjóţekja á Lyngdalsheiđi, en hálkublettir ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:45

Fíkniefnasali á Menntavegi og grillađir unglingar í Gvendargeisla

Lögreglan hafđi afskipti af fjórum unglingum viđ Gvendargeisla um klukkan hálf tólf í gćrk...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:00

Bíđa Alţingis og fresta innheimtu

Kristbjörg Stephensen borgarlögmađur segir í minnisblađi til borgarráđs ađ borgin verđi ađ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:30

Óttast ađ verđmćtar minjar endi í brćđslu

Safnaráđ tók skeiđar og skart úr silfri af breskum kaupmanni sem hugđist fara međ góssiđ ú...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:00

Eftirlitsstofnun vill kröfur í lög fyrir marslok

Íslensk stjórnvöld telja ađ nýtt frumvarp um starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. (RÚV) muni inn...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 07:00

Frumvarp um barnalög gamaldags

Anja Cordes, lögfrćđingur á sviđi fjölskylduréttar í Danmörku, segir í viđtali viđ Fréttab...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viđskipti
  • Lífiđ

Fréttir eftir mánuđi

Ţú ert hér: Forsíđa / Fréttir / Innlent / Fá enn fjarnám ţótt ráđuneyti vilji skera