Gera það gott í góulok

Fréttablaðið Fastir pennar 19. mars 2010 06:00
Páll Baldvin Baldvinsson
Páll Baldvin Baldvinsson
Páll Baldvin Baldvinsson skrifar:

Hönnunarmarsinn er tekinn að hljóma úr fjarlægð og brátt skellur hann á; það var vel til fundið hjá aðstandendum að nota marsinn og mars sem einkennisheiti fyrir hátíðahöld næstu daga. Íslenskir hönnuðir marsera nú inn á hinn opinbera vettvang í skrúðgöngu.

Þeir eru ekki lengur dulir og til baka heldur koma þeir fram völlinn fullir vissu um að þeir eiga aðgang að heiminum með sköpun sína og hugsun, fullt erindi á alþjóðavísu. Þeir hafa menntun á við hvern þann sem leggur fyrir sig hönnun í víðum skilningi orðsins, eiga sama knippi tækifæra og starfsbræður þeirra í öðrum heimshlutum sem þó standa næst framleiðsluverksmiðjum - jafnvel fleiri tækifæri - því á sviði alþjóðlegrar hönnunar eru áhugamenn forviða á að frá lítilli eyju langt í norðri komi svo frumlegar hugmyndir: íslensk hönnun - er hún til?

Svarið er jákvætt í öllum brigðum orðsins. Íslensk hönnun er jákvæð. Hún hefur kostað okkur langan aðdraganda menntunar, bæði hér heima og í gistivináttu erlendra skóla sem hafa tekið við okkar fólki og menntað það frekar. Íslensk hönnun fer vaxandi og er háð þeim endimörkum sem landhelgin gefur og fyrir bragðið verður íslensk hönnun að sækja á erlenda markaði. Íslenskir hönnuðir verða að hugsa fyrir heiminn.

Hönnun er enda alþjóðlegt fyrirbæri: skálin lýtur sömu notagildum fyrir þá í Súdan og Grímsnesinu, glasið líka. Allt umhverfi okkar er hannað, búið til, hugsað, skapað af hugsun í hönnun. Og það er mikill grundvallarmisskilningur að hönnun skipti ekki máli, það skilst til fulls þegar hún mistekst, flík passar illa, fatið lekur, tæki þjónar ekki tilgangi sínum, notagildið kemst ekki til skila.
Hönnunarmarsinn er nú haldinn í annað sinn og hefur vaxið ört á þessu eina ári. Dagskráin leiðir í ljós að gríðarmikil þensla er í hönnun hér á landi, svo mikil að ótti læðist að manni að ekki reynist tækifæri til að koma öllu því sem íslenskir hönnuðir hafa hugsað og þróað í verk, í framleiðslu og á markað. Hönnun á erindi á öllum stigum framleiðslu, frá heimilisiðnaði til stórtækrar framleiðslu, og ekki verður séð annað en okkar fólk ætli sér aðgang í framleiðslu af hvaða tagi sem er.

Hvað þýðir það fyrir okkur hin? Finnast þeir frumkvöðlar að þeir taki sig til og ráðist í nýja framleiðslu hér - eða hvar sem er á hnettinum - okkur til góða? Hafa stjórnvöld vit á að opna nýjum framleiðslueiningum starfsgrundvöll hér á landi? Reynast eldri framleiðslueiningar þeirrar gæfu aðnjótandi að taka nýrri hönnun opnum örmum, megna þær að aðlaga sig nýrri vörulínu? Hönnunarmarsinn heimtar þannig skýr svör um hvort áframhald hönnunar verði framleiðsla og hvort henni er best fyrir komið hér eða í fyrirtækjum erlendis.

Þá atburðarás væri hægt að hanna, kæri menn sig um og hafi þeir á því vit. Þeir tímar hljóta að vera í vændum að systurnar hönnun og framleiðsla leiði áfram inn í vorið og gróandann. Við eigum að slást í þá göngu og marsera með.





Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvæðing er mesta hættan

Ögmundi Jónassyni tókst með haldbærum rökum í Kastljóssþætti í vikunni að sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar þjóðir eiga fleiri eða aflmeiri bíla miðað við fólksfjölda en Íslendingar. Það á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gæti þótt mikil eftirsjá að öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og þar um landið...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigð kærasta vill tilbreytingu

Öll erum við með okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfræðing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstaða um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaaflið Samstaða, undir forystu Lilju Mósesdóttur alþingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Það er undur stutt síðan málið sýndist afgreitt. Þetta með markaðina og ríkið. Markaðir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 08:00

Ögmundur og íhaldið

Sagnfræðingar tala um að stéttastjórnmál hafi leyst sjálfstæðisstjórnmál af hólmi árið 191...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 06:00

Kostnaður krónu

Samkeppniseftirlitið birti í síðustu viku skýrslu sína um verðþróun og samkeppni á dagvöru...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Gera það gott í góulok