Boðberar válegra tíðinda

Fréttablaðið Aðsendar greinar 19. mars 2010 06:00
Magnús Karl Magnússon blóðmeinafræðingur dna heilun læknir lækning
Magnús Karl Magnússon blóðmeinafræðingur dna heilun læknir lækning

Magnús Karl Magnússon, Guðmundur Þorgeirsson og Sigurður Guðmundsson skrifa um Herbalife.

Hlutverk fræðimannsins í opinberri umræðu er einn af hornsteinum upplýstrar umræðu í lýðræðissamfélagi. Styrkur fræðimannsins liggur í faglegri nálgun og vísindalegri aðferðafræði en jafnframt ber honum skylda til að kynna niðurstöður sínar og leggja þær fram til skoðunar, umræðu og gagnrýni. Oft á tíðum snertir viðfangsefni fræðimanna mikilvæga hagsmuni, bæði almannahagsmuni svo og fjárhagslega og viðskiptalega hagsmuni. Innan heilbrigðisvísinda vega almannahagsmunir oft mjög þungt enda viðfangsefnið heilsa og sjúkdómar einstaklinga. Það skiptir því fræðimanninn öllu að ályktanir séu byggðar á fyrirliggjandi gögnum og vísindalegum túlkunum en stýrist ekki af beinum eða óbeinum hagsmunatengslum.

Þegar fræðilegar ályktanir snúast um heilsu og sjúkdóma eru almannahagsmunir ótvíræðir og skylda fræðimannsins vegur þar einkar þungt. Heiður fræðimannsins og óhlutdrægni er honum því mikils verð. Það er hins vegar alþekkt að öflugir hagsmunaaðilar sem telja niðurstöður fræðimanna ógna hagsmunum sínum beina spjótum sínum að æru slíkra fræðimanna. Almenningur og fjölmiðlar þurfa að vera vakandi fyrir slíkum tilburðum. Við höfum orðið vitni að fjölmörgum slíkum dæmum á síðustu misserum þar sem bæði öflug fyrirtæki og valdamenn, þ.ám. stjórnmálamenn, í samfélagi okkar hafa vegið að æru virtra fræðimanna fyrir það eitt að opinbera gögn sín eða skoðanir á opinberum vettvangi. Boðberar válegra tíðinda hafa löngum mátt gjalda fyrir hlutskipti sitt.

Viðbrögð Herbalife

Nýlegt dæmi er blaðagrein Jóns Óttars Ragnarssonar, talsmanns Herbalife á Íslandi, í Fréttablaðinu, 13. mars sl. („Fæðubót: Böl eða blessun?") og önnur fjölmiðlaumfjöllun, m.a. viðtal Sölva Tryggvasonar við hann á Skjá einum sama dag. Umfjöllun Jóns Óttars eru viðbrögð við því að hópur vísindamanna birti rannsóknir á hugsanlegum lifrarskaða tengdum notkun á Herbalife-vörum. Jón Óttar beinir þar stórum hluta umfjöllunar sinnar að heiðarleika og meintum hagsmunatengslum aðalhöfundar greinarinnar, Magnúsar Jóhannssonar, prófessors við læknadeild Háskóla Íslands. Þetta gerir hann með rætnum aðdróttunum og ósannindum en tilgangurinn er ljós og ætti að vera öllum sýnilegur, sér í lagi ef Jón Óttar myndi skýra frá hagsmunum sínum af sölu á Herbalife-vörum hér á landi. Magnús Jóhannsson er m.a. sagður vera varðgæslumaður hins alþjóðlega lyfjaiðnaðar og hann jafnframt sakaður um að standa að hræðsluáróðri og að ala á andúð og fáfræði í kennslu sinni um árabil við læknadeild HÍ. Staðreynd málsins er sú að Magnús hefur aldrei haft nein hagsmunatengsl við lyfjaiðnaðinn. Hann hefur verið öflugur fræðimaður á sviði lyfja- og eiturefnafræði, bæði grunnrannsókna á lífeðilsfræði hjartans svo og við að rannsaka verkanir og aukaverkanir bæði lyfja og náttúruefna. Fræðilegur heiðarleiki Magnúsar hefur alla tíð verið eitt hans aðaleinkenni sem hefur þó á stundum bakað honum óvild meðal ýmissa hagsmunaaðila, bæði innan lyfjaiðnaðarins og meðal fylgismanna hjálækninga.

Í umræddu dæmi hafa fræðimenn við Háskóla Íslands, Landspítalann og Lyfjastofnun notað viðurkennda vísindalega aðferðafræði til að rannsaka hugsanleg orsakatengsl milli eitrunarlifrarbólgu og notkunar á Herbalife-vörum. Öll gögn eru lögð á borðið og vafaatriði dregin fram í umræðukafla greinarinnar. Hin fræðilega greining fór í gegnum ritrýni áður en hún birtist sem vísindagrein í Læknablaðinu, einu af tveimur vísindaritum á Íslandi sem hlotið hafa viðurkenningu og skráningu í hinum alþjóðlega vísindagagnagrunni ISI („Instutite for Scientific Information").

Eins og um aðrar vísindaniðurstöður viljum við hvetja til umræðu um kosti og galla þessarar vinnu og hvort ályktanir standist vísindalega skoðun. Höfundar umræddrar vísindagreinar þurfa þá að rökstyðja sínar ályktanir og er það okkar álit að þeir séu öflugir og mjög vel hæfir til að taka þátt í slíkri umræðu. Auk Magnúsar eru tveir læknar með sérmenntun á sviði lifrarsjúkdóma höfundar að greininni.

Fyrirtækið sem markaðssetur vörur sínar undir vörumerkjum Herbalife er að selja fæðubótarefni sem stuðla eiga að auknu heilbrigði. Það vekur sérstaka furðu og vonbrigði að forsvarsmenn þess sýni ekki meiri ábyrgð gagnvart almenningi en svo að talsmaður þess, Jón Óttar Ragnarsson, vilji þagga niður umræðuna með persónulegri aðför að forsvarsmanni rannsóknarinnar. Það eru reyndar mörg dæmi um að fyrirtæki hafa viljað þagga niður óþægilegar niðurstöður í stað þess að taka þeim opnum örmum. Dæmi eru um að lyfjafyrirtæki hafa reynt þetta en það er þó ávallt reynsla ábyrgra lyfjafyrirtækja að það samræmist best langtímahagsmunum þeirra að taka slíkum upplýsingum opnum huga og kanna frekar þar sem þær varða ljóslega öryggi neytendanna.

Þöggunarárátta

Almenningur verður að gjalda sérstakan varhug við því þegar talsmenn fyrirtækja eða stjórnvalda reyna að þagga niður fræðilega umræðu eða vega að persónu þeirra sem að slíkum rannsóknum standa. Slíkt er nánast aldrei gert með hagsmuni almennings eða hagsmuni sannleikans í huga heldur mun fremur vegna þröngra viðskiptalegra hagsmuna. Fjölmiðlar verða einnig að vera vakandi fyrir slíkum vinnubrögðum og það sætir mikilli furðu að í þessu tilfelli skuli slík skrif birtast án þess að almenningi sé gert ljóst hverra hagsmunir liggi að baki. Við hvetjum íslenska fjölmiðla til að hafa hagsmuni almennings og sannleikans í huga þegar um mál sem þetta er rætt. Einnig teljum við það sjálfsagða kröfu að þegar ábyrgir fjölmiðlar birta aðsendar greinar að höfundar þeirra útlisti fyrir lesendum bein hagsmunatengsl sem málið varða.

Magnús Karl Magnússon er prófessor við læknadeild Háskóla Íslands og forstöðumaður Rannsóknarstofu í Lyfja- og eiturefnafræði. Guðmundur Þorgeirsson er prófessor og forseti læknadeildar Háskóla Íslands og Sigurður Guðmundsson, forseti Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands.


Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Menntun má tæta

Tilraunir sveitarfélaga til að treysta fjárhagsstöðu sína og draga úr útgjöldum hafa falis...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Meirihlutinn ræður

Fimmtudaginn 12. jan. sl. varð áhugaverð uppákoma í bæjarráði Kópavogs. Þá ákvað bæjarráð ...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Brotin fjölskylda eða betra líf?

Að gifta sig er hamingja en að skilja er óhamingja. Eða hvað?...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Vernd barna gegn kynferðislegum glæpum

Það er dapurleg staðreynd að fjöldi barna í heiminum í dag verður fyrir kynferðislegu ofbe...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Hrunið 2016

Það er haustið 2016 og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er aftur kominn til Íslands. Í þetta sin...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 14:00

Vísindi, veiðar og mannréttindi

Hvernig kerfi eiga Íslendingar að nota við fiskveiðar? Á undanförnum árum hafa verið gerða...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 06:00

Ruglið og reikningsgetan

Fjórði hver drengur, sem útskrifast úr grunnskóla, er sagður ekki kunna að lesa. Enn stærr...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 06:00

Má gera okkur öllum upp skoðanir?

Hæfileikafólk á Íslandi er álíka margt og í þrjú hundruð þúsund manna borg annars staðar í...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 03:13

Motörhead gegn íslenska ríkisbákninu

Á hverjum degi flytja fimm manns frá Íslandi til þess að hefja nýtt líf í öðru landi. Efti...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Opið bréf til Ögmundar Jónassonar

Á Íslandi er skilnaðartíðni há en lagaumhverfið hefur ekki tekið mið af því á Íslandi í sa...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Það er ljótt að skilja útundan herra borgarstjóri

Ég skora á borgarstjórann í Reykjavík að draga til baka ákvörðun varðandi niðurfellingu ne...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Breytt framtíðarsýn lesblindra

Flestar skólabyggingar á Íslandi í dag eru með þeim hætti að fatlaðir eiga auðvelt með að ...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Til of mikils mælst?

Þegar ógnvekjandi tölur um treglæsi unglinga birtust sl. haust tók ég mig til og skrifaði ...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Arðurinn – 44:2 fyrir LÍÚ

Hagstofa Íslands birti fyrir nokkrum dögum nákvæm gögn um afkomu sjávarútvegsins árið 2010...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Lendandi á Hólmsheiði í 96-98% tilvika – 95% er nóg

Háskólinn í Reykjavík (HR) og talsmenn flugvallar í Vatnsmýri (flugvallarsinnar) stóðu fyr...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Sæll Sighvatur Björgvinsson

Við eigum sameiginlegt áhugamál sem eru íslenskir grunnskólar. Af skrifum þínum má þó ætla...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Heggur sá er hlífa skyldi

Ekki alls fyrir löngu stóð Skóla- og frístundaráð Reykjavíkur (áður Menntaráð) frammi fyri...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Hvað hefur komið fyrir litla Ísland?

Ég var agndofa í lok vinnudags í byrjun árs....  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Ávöxtun (tap) lífeyrissjóða

Nýlega er komin út skýrsla rannsóknarnefndar um lífeyrissjóði. Mikið hefur verið rætt um h...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

PIP brjóstapúðamálið – um staðreyndir og villandi málflutning

Liðlega 400 íslenskar konur fengu brjóstafyllingar frá franska framleiðandanaum Poly Impla...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 14:30

Hvað með ristilkrabbamein?

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra ritar grein í Fréttablaðið þann 4. febrúar sl. Þar ...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 09:21

Umræða um tap lífeyrissjóðanna á villigötum

Í nýútkominni rannsóknarskýrslu er fjallað um hvernig íslensku lífeyrissjóðunum vegnaði í...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Endurskoðun stjórnarskrárinnar

Nú liggja fyrir tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á stjórnarskrá íslenska lýðveldisins...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Menntun ábyrgra stjórnenda – ábyrgð háskóla

Leiðtogar dagsins í dag, hvort sem er í stjórnmálum eða viðskiptalífi, standa frammi fyrir...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Velferð barna í forsjárdeilum

Karvel Aðalsteinn Jónsson skrifar grein í Fréttablaðið 7. febrúar þar sem hann spyr mig í ...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Slys aldarinnar við Hringbraut eða sóun í Fossvogi?

Guðjón Baldursson læknir skrifaði í Fbl. og rökstuddi að Háskólasjúkrahús (HSH) við Hringb...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Val um skólastefnu – já takk!

Tilefni þessarar greinar er að vekja athygli foreldra 6 ára barna, sem nú eru að innrita b...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 13:00

Konur og samkeppnishæfni Evrópu

Efnahagssamdráttur, einkum í Evrópu, hefur verið efst á baugi nær allra alþjóðlegra funda ...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Sagan um neysluhléið

Á góðæristímum Íslands voru miklir erfiðleikar við að manna leikskólana. Það var næga vinn...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Veist þú betur Ögmundur ?

Þann 10. febrúar n.k. mun Félag um foreldrajafnrétti standa fyrir ráðstefnu um fyrirhugaða...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Borgin mismunar í framlögum til félagsstarfs

Borgaryfirvöld styðja að mörgu leyti vel við bakið á frjálsri félagastarfsemi barna og ung...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Að fermast upp á Faðirvorið

Þær fréttir berast úr íslenska grunnskólakerfinu að fjórði hver drengur sem útskrifast get...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Endurskoðun eða uppstokkun?

Eftir að hafa unnið að endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins í tæpa fjóra mánuði skilaði ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 15:00

Áskorun réttarkerfis og samfélags

Virðingin sem mér var sýnd! Ég bar ekki virðingu fyrir sjálfri mér og að mér skyldi sýnd þ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 12:54

Dagur leikskólans

Í dag er haldinn hátíðlegur í fimmta sinn Dagur leikskólans. Fyrir rúmum 60 árum síðan eða...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Já á landsbyggðinni

Löng hefð er fyrir því að þjónustuver Já og forvera fyrirtækisins séu staðsett bæði á land...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 12:57

Stjórnvöld biðjist afsökunar

Það verður að teljast sigur þegar umboðsmaður skuldara tók málstað lánþega í útvarpsþætti ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Sujud er orðin þriggja ára

Hún fæddist í Zeitun á Gazaströndinni og tilheyrir Samuni ættinni. Fyrir þremur árum fæddi...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Erum við verri en annað fólk?

Ég hef fengið tækifæri til að búa í nokkrum ólíkum löndum og kynnast öðrum þjóðum. Í grófu...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Skýrslu Hagfræðistofnunar verulega ábótavant

Nýverið birti Hagfræðistofnun Háskólans skýrslu sína um tillögur Hagsmunasamtaka heimilann...  

Meira
Aðsendar greinar 05. feb. 2012 12:09

Yfirlýsing frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni

Í tilefni þess sem kemur fram í lífeyrissjóðaskýrslunni að Baugur Group hf. hafi borið áby...  

Meira
Aðsendar greinar 05. feb. 2012 06:00

Æskilegt að velja heilkornavörur

Nýlega voru birtar niðurstöður úr landskönnun á mataræði sem fram fór á árunum 2010-2011. ...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 11:00

Spornum við útbreiðslu krabbameina

Alþjóðlegur dagur baráttu gegn krabbameinum er í dag, 4. febrúar, haldinn ár hvert samkvæm...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Hvers vegna er verið að halda upplýsingum um alvarlegar aukaverkanir HPV –bóluefnanna frá fólki?

Það er greinilegt á öllu að það þarf fleiri menn en þetta umdeilda lið þarna frá Landlækni...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Perlu í Perluna

Þegar Perlan var byggð efst á Öskjuhlíðinni um 1990 voru aðrir tímar. Hitaveitan var ekki ...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Hvað er „Liberal Democrats“ og hvað mundi það þýða fyrir íslenskt samfélag

Ég heyrði talað um „Liberal Democrats“ og velti fyrir mér hvað þetta væri á ís...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Eru konur konum verstar?

Fimmtudaginn 26. janúar sl. veitti Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) Katrínu Olgu Jóhann...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 23:08

Harður árekstur

Einn eftirminnilegasti kennari sem ég hef haft í gegnum tíðina er Þorsteinn Gylfason heiti...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 14:45

Áætlun um efnahagslegt öryggi

Við forsvarsmenn sex vinstriflokka á Norðurlöndunum krefjumst þess að reglur verði settar ...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 08:00

Nýr Landspítali við Hringbraut: Nei, takk!

Þegar músin tísti vöknuðu ljónin í skóginum. Annar höfundur þessarar greinar skrifaði tvær...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Boðberar válegra tíðinda