Hagsmunir hverra?

Fréttablaðið Aðsendar greinar 19. mars 2010 06:00
Finnur Oddsson 
Endurskipulag atvinnulífsins
Finnur Oddsson Endurskipulag atvinnulífsins

Eignarhald á íslenskum fyrirtækjum er óvenjulegt um þessar mundir. Mörg eru undir forsjá ríkisbanka eða kröfuhafa þrotabúa bankanna. Fyrir önnur er alger óvissa um framtíð reksturs og eignarhalds því ekki hefur verið tekið á þeirra málum. Þetta ófremdarástand leiðir til óheilbrigðra vinnubragða og því þarf sem fyrst að koma skikki á eignarhald atvinnufyrirtækja og koma þeim í hendur eigenda sem hafa þekkingu á rekstrinum og hag af því að hann gangi vel. Verðmæti og störf eru í húfi og það er þjóðarhagur að endurskipulagning á eignarhaldi gangi sem hraðast fyrir sig.

Að þessu marki er unnið á mörgum vígstöðvum. Löggjafinn vinnur að nýrri lagasetningu um fjármálafyrirtæki og kynntar hafa verið sameiginlegar verklagsreglur banka um úrlausn skuldavanda. Bankar, skilanefndir, skiptastjórar og fleiri starfa að því að skýra eignarhald, með samningum við fyrri eigendur eða sölu á fyrirtækjum. Engum dylst mikilvægi þess að endurskipulagning atvinnulífs sé hafin yfir vafa um að óeðlilega sé staðið að málum. Öll slík tilvik torvelda nauðsynlegt umbreytingarferli sem nú þegar gengur allt of hægt.

Í endurskipulagningu af þessu tagi er hætt við að hagsmunir heildar rekist á við hagsmuni aðila sem mest áhrif hafa á ákvarðanir og framkvæmd. Til dæmis er mögulegt að áherslur í starfi banka og skilanefnda gangi út á að hámarka endurheimtur eigna fremur en að stuðla að skilvirkum rekstri á grunni vaxtamunar og þóknanatekna. Óheppilegar afleiðingar slíkra áherslna eru að söluvænleg fyrirtæki eru ekki seld fyrr en seint og um síðir eða að lítt lífvænlegum fyrirtækjum er haldið gangandi vegna greiðsluflæðis til skemmri tíma.

Með þessum hætti er stuðlað að óheilbrigðri samkeppni og hægari aðlögun framboðs til samræmis við breytta eftirspurn í hagkerfinu, sem hefur slæmar afleiðingar á rekstrarumhverfi og hag neytenda. Það er vonandi að sameiginlegar verklagsreglur og ný löggjöf um eignarhald fjármálafyrirtækja á félögum í ótengdum rekstri dragi eitthvað úr þessum vanda en svo virðist sem heimildir fjármálafyrirtækja til eignarhalds séu enn allt of rúmar.

Að undanförnu hefur mikið verið lagt upp úr gagngerri endurskoðun stjórnarhátta fyrirtækja. Því til stuðnings gáfu Viðskiptaráð, Samtök atvinnulífs og Kauphöll Nasdaq OMX nýverið út verulega uppfærðar leiðbeiningar um stjórnarhætti þar sem m.a. er lögð áhersla á óhæði stjórnarmanna til að auka gagnsæi og bæta trúverðugleika. Mikilvægi stjórnarháttaviðmiða er óumdeilt og sérstaklega brýnt að eftir þeim sé farið í umsvifamestu fyrirtækjum landsins, sem m.a. eru skilanefndir og bankar og fyrirtæki sem rekin eru á þeirra ábyrgð.

Því miður hafa hins vegar of mörg tilvik óheppilegra hagsmunaárekstra komið upp í endurskipulagningu atvinnulífs að undanförnu. Dæmi eru um að skiptastjórar skipa sjálfa sig sem söluaðila eigna og þiggja þóknun bæði fyrir stjórn skipta og sölu. Dæmi eru um að bankar stofni eignarhaldsfélög og skipi sömu einstaklinga í flest viðkomandi fyrirtækja, oft starfsmenn bankans. Dæmi eru um að skilanefndir úthluti verkefnum til nátengdra aðila og stundum virðist beinlínis hvati til að klára ekki þau erfiðu mál sem þar liggja, þó afgerandi fordæmi liggi fyrir annars staðar og heildarhagsmunir ýti á skjóta afgreiðslu. Svona væri hægt að telja áfram. Óháð þeim tilvikum þar sem vel hefur tekist til virðist sem hagsmunir þeirra sem starfa á vegum banka, skilanefnda eða þrotabúa gangi of oft framar augljósum hag heildarinnar.

Það er auðvitað ekki svo að ágætt fólk sem starfar nú að ofangreindum verkefnum vilji ekki vel. Kerfið ýtir hins vegar ekki alltaf undir fagleg vinnubrögð, gagnsæi og skilvirkni. Að því verður að huga og lagfæra það sem miður fer. Lágmarkskrafan sem nú er uppi um endurskipulagningu atvinnulífs, er að til stjórnarhátta sé vandað og að ferlið sé hafið yfir vafa um annarleg vinnubrögð eða hagsmuni. Hvert slíkt tilvik leggur stein í götu nauðsynlegrar endurskipulagningar og kemur í veg fyrir sátt og traust á atvinnulífinu. Þetta þurfa allir sem vinna að endurskipulagningunni að hafa í huga. Hrösun veldur því að efnahagslífið réttir ekki úr kútnum eins og annars væri mögulegt og lífskjör sitja eftir í sama mæli. Það er óásættanlegt fyrir alla Íslendinga og aðra sem hér hafa hagsmuna að gæta til framtíðar.

Höfundur er framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands.


Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Menntun má tæta

Tilraunir sveitarfélaga til að treysta fjárhagsstöðu sína og draga úr útgjöldum hafa falis...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Meirihlutinn ræður

Fimmtudaginn 12. jan. sl. varð áhugaverð uppákoma í bæjarráði Kópavogs. Þá ákvað bæjarráð ...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Brotin fjölskylda eða betra líf?

Að gifta sig er hamingja en að skilja er óhamingja. Eða hvað?...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Vernd barna gegn kynferðislegum glæpum

Það er dapurleg staðreynd að fjöldi barna í heiminum í dag verður fyrir kynferðislegu ofbe...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Hrunið 2016

Það er haustið 2016 og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er aftur kominn til Íslands. Í þetta sin...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 14:00

Vísindi, veiðar og mannréttindi

Hvernig kerfi eiga Íslendingar að nota við fiskveiðar? Á undanförnum árum hafa verið gerða...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 06:00

Ruglið og reikningsgetan

Fjórði hver drengur, sem útskrifast úr grunnskóla, er sagður ekki kunna að lesa. Enn stærr...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 06:00

Má gera okkur öllum upp skoðanir?

Hæfileikafólk á Íslandi er álíka margt og í þrjú hundruð þúsund manna borg annars staðar í...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 03:13

Motörhead gegn íslenska ríkisbákninu

Á hverjum degi flytja fimm manns frá Íslandi til þess að hefja nýtt líf í öðru landi. Efti...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Opið bréf til Ögmundar Jónassonar

Á Íslandi er skilnaðartíðni há en lagaumhverfið hefur ekki tekið mið af því á Íslandi í sa...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Það er ljótt að skilja útundan herra borgarstjóri

Ég skora á borgarstjórann í Reykjavík að draga til baka ákvörðun varðandi niðurfellingu ne...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Breytt framtíðarsýn lesblindra

Flestar skólabyggingar á Íslandi í dag eru með þeim hætti að fatlaðir eiga auðvelt með að ...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Til of mikils mælst?

Þegar ógnvekjandi tölur um treglæsi unglinga birtust sl. haust tók ég mig til og skrifaði ...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Arðurinn – 44:2 fyrir LÍÚ

Hagstofa Íslands birti fyrir nokkrum dögum nákvæm gögn um afkomu sjávarútvegsins árið 2010...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Lendandi á Hólmsheiði í 96-98% tilvika – 95% er nóg

Háskólinn í Reykjavík (HR) og talsmenn flugvallar í Vatnsmýri (flugvallarsinnar) stóðu fyr...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Sæll Sighvatur Björgvinsson

Við eigum sameiginlegt áhugamál sem eru íslenskir grunnskólar. Af skrifum þínum má þó ætla...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Heggur sá er hlífa skyldi

Ekki alls fyrir löngu stóð Skóla- og frístundaráð Reykjavíkur (áður Menntaráð) frammi fyri...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Hvað hefur komið fyrir litla Ísland?

Ég var agndofa í lok vinnudags í byrjun árs....  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Ávöxtun (tap) lífeyrissjóða

Nýlega er komin út skýrsla rannsóknarnefndar um lífeyrissjóði. Mikið hefur verið rætt um h...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

PIP brjóstapúðamálið – um staðreyndir og villandi málflutning

Liðlega 400 íslenskar konur fengu brjóstafyllingar frá franska framleiðandanaum Poly Impla...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 14:30

Hvað með ristilkrabbamein?

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra ritar grein í Fréttablaðið þann 4. febrúar sl. Þar ...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 09:21

Umræða um tap lífeyrissjóðanna á villigötum

Í nýútkominni rannsóknarskýrslu er fjallað um hvernig íslensku lífeyrissjóðunum vegnaði í...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Endurskoðun stjórnarskrárinnar

Nú liggja fyrir tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á stjórnarskrá íslenska lýðveldisins...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Menntun ábyrgra stjórnenda – ábyrgð háskóla

Leiðtogar dagsins í dag, hvort sem er í stjórnmálum eða viðskiptalífi, standa frammi fyrir...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Velferð barna í forsjárdeilum

Karvel Aðalsteinn Jónsson skrifar grein í Fréttablaðið 7. febrúar þar sem hann spyr mig í ...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Slys aldarinnar við Hringbraut eða sóun í Fossvogi?

Guðjón Baldursson læknir skrifaði í Fbl. og rökstuddi að Háskólasjúkrahús (HSH) við Hringb...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Val um skólastefnu – já takk!

Tilefni þessarar greinar er að vekja athygli foreldra 6 ára barna, sem nú eru að innrita b...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 13:00

Konur og samkeppnishæfni Evrópu

Efnahagssamdráttur, einkum í Evrópu, hefur verið efst á baugi nær allra alþjóðlegra funda ...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Sagan um neysluhléið

Á góðæristímum Íslands voru miklir erfiðleikar við að manna leikskólana. Það var næga vinn...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Veist þú betur Ögmundur ?

Þann 10. febrúar n.k. mun Félag um foreldrajafnrétti standa fyrir ráðstefnu um fyrirhugaða...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Borgin mismunar í framlögum til félagsstarfs

Borgaryfirvöld styðja að mörgu leyti vel við bakið á frjálsri félagastarfsemi barna og ung...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Að fermast upp á Faðirvorið

Þær fréttir berast úr íslenska grunnskólakerfinu að fjórði hver drengur sem útskrifast get...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Endurskoðun eða uppstokkun?

Eftir að hafa unnið að endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins í tæpa fjóra mánuði skilaði ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 15:00

Áskorun réttarkerfis og samfélags

Virðingin sem mér var sýnd! Ég bar ekki virðingu fyrir sjálfri mér og að mér skyldi sýnd þ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 12:54

Dagur leikskólans

Í dag er haldinn hátíðlegur í fimmta sinn Dagur leikskólans. Fyrir rúmum 60 árum síðan eða...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Já á landsbyggðinni

Löng hefð er fyrir því að þjónustuver Já og forvera fyrirtækisins séu staðsett bæði á land...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 12:57

Stjórnvöld biðjist afsökunar

Það verður að teljast sigur þegar umboðsmaður skuldara tók málstað lánþega í útvarpsþætti ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Sujud er orðin þriggja ára

Hún fæddist í Zeitun á Gazaströndinni og tilheyrir Samuni ættinni. Fyrir þremur árum fæddi...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Erum við verri en annað fólk?

Ég hef fengið tækifæri til að búa í nokkrum ólíkum löndum og kynnast öðrum þjóðum. Í grófu...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Skýrslu Hagfræðistofnunar verulega ábótavant

Nýverið birti Hagfræðistofnun Háskólans skýrslu sína um tillögur Hagsmunasamtaka heimilann...  

Meira
Aðsendar greinar 05. feb. 2012 12:09

Yfirlýsing frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni

Í tilefni þess sem kemur fram í lífeyrissjóðaskýrslunni að Baugur Group hf. hafi borið áby...  

Meira
Aðsendar greinar 05. feb. 2012 06:00

Æskilegt að velja heilkornavörur

Nýlega voru birtar niðurstöður úr landskönnun á mataræði sem fram fór á árunum 2010-2011. ...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 11:00

Spornum við útbreiðslu krabbameina

Alþjóðlegur dagur baráttu gegn krabbameinum er í dag, 4. febrúar, haldinn ár hvert samkvæm...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Hvers vegna er verið að halda upplýsingum um alvarlegar aukaverkanir HPV –bóluefnanna frá fólki?

Það er greinilegt á öllu að það þarf fleiri menn en þetta umdeilda lið þarna frá Landlækni...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Perlu í Perluna

Þegar Perlan var byggð efst á Öskjuhlíðinni um 1990 voru aðrir tímar. Hitaveitan var ekki ...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Hvað er „Liberal Democrats“ og hvað mundi það þýða fyrir íslenskt samfélag

Ég heyrði talað um „Liberal Democrats“ og velti fyrir mér hvað þetta væri á ís...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Eru konur konum verstar?

Fimmtudaginn 26. janúar sl. veitti Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) Katrínu Olgu Jóhann...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 23:08

Harður árekstur

Einn eftirminnilegasti kennari sem ég hef haft í gegnum tíðina er Þorsteinn Gylfason heiti...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 14:45

Áætlun um efnahagslegt öryggi

Við forsvarsmenn sex vinstriflokka á Norðurlöndunum krefjumst þess að reglur verði settar ...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 08:00

Nýr Landspítali við Hringbraut: Nei, takk!

Þegar músin tísti vöknuðu ljónin í skóginum. Annar höfundur þessarar greinar skrifaði tvær...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Hagsmunir hverra?