Næsti forseti Bandaríkanna hugsanlega hershöfðingi

Vísir Erlent 19. mars 2010 23:45
Patreus ásamt Obama sem er mikll aðdáandi hans.
Patreus ásamt Obama sem er mikll aðdáandi hans.

Þó svo að tvö ár eru í næstu forsetakosningarnar í Bandaríkjunum þá eru Repúblikanar engu að síður farnir að leita að nýrri vonarstjörnu. Sá sem þykir líklegur þessa stundina til þess að sækjast eftir útnefningu flokksins til þess að bjóða til fram til forseta undir þeirra merkjum er hershöfðinginn David Petraeus.

David varð heimsfrægur á svipstundu árið 2007 þegar Georg W. Bush, þáverandi forseti Bandaríkjanna, sendi hann til Írak til þess að koma í veg fyrir borgarastyrjöld. David þykir hafa sýnt góðan árangur í Írak og meðal aðdáanda hans er sjálfur forseti Bandaríkjanna og hugsanlegur keppinautur í framtíðinni, Barack Obama.

Samkvæmt úttekt Daily Telegraph þá hefur David neitað því hingað til að hann hyggist gefa kost á sér. Það sé þó eitthvað sem frambjóðendur geri ávallt til að byrja með.

Aftur á móti vekur athygli að David heldur ræðu Saint Anselm menntaskólanum í New Hampshire en þar hafa átta síðustu forseta haldið ræður áður en þeir komust að lokum til valda.

Það þykir því ekkert launungarmál að David er að gæla við að gefa kost á sér sem forseti Bandaríkjanna árið 2012.

Repúblikana standa á krossgötum eftir að þeir töpuðu fyrir Obama í síðustu kosningum. Ólíklegt þykir að Mitt Romney, sem sóttist eftir tilnefningu flokksins árið 2008, bjóði sig fram. Ástæðan er sú að hann á erfitt með að tengjast almennum kjósendum, hann nær frekar til hástéttarinnar.

Þá nefna margri Söruh Palin sem sló heldur betur í gegn í síðustu kosningum sem varaforsetaefni. Hún er reyndar sökuð um að hafa kostað flokkinn sigurinn. Því telja flestir að hún sé of umdeild þrátt fyrir að ný hreyfing innan flokksins sem kallast, Tea party, líki vel við hana.

Sjálfur hefur David Petraeus lýst sér sjálfum sem Rockafeller-repúblikana. Það er að segja, stjórnmálamaður sem er ekki algjörlega andsnúinn þeim kapítalisma sem hefur viðgengist í Bandaríkjunum undanfarin ár. Það aftur á móti gæti styggt Tea-party hreyfinguna sem hefur meðal annars gagnrýnt bónuskerfi og ríkisafskiptum af stórfyrirtækjum harkalega.

David þykir hinsvegar hafa víðtæka skírskotun til kjósenda í Bandaríkjunum. Þá helst á þeim forsendum að hann getur fyllt þá öryggiskennd, sem skipti kanann miklu máli þessa daganna.


Fleiri fréttir - Erlent

Erlent 12. feb. 2012 12:15

Kafteinn klúður: Myndband sýnir aðgerðarleysi skipstjórans

Myndband sem sýnir viðbrögð skipstjóra skemmtiferðaskipsins Costa Concordia, sem strandaði...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 10:03

Grunur leikur á að Whitney hafi drukknað í baðkari

Grunur leikur á að söngdívan Whitney Houston hafi drukknað í baðkari á hóteli sínu þar sem...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 10:15

Romney sigraði í Maine fylki

Mitt Romney, sigraði í forkosningu repúblikanaflokksins í Maine fylki í Bandaríkjunum í gæ...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 03:13

Whitney Houston látin

Söngkonan Whitney Houston er látin, 48 ára að aldri. Talskona hennar staðfestir þetta í sa...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 09:52

Fannst látin á hótelherbergi

Bandaríska söng- og leikkonan Whitney Houston er látin, 48 ára að aldri. Hún fannst látin ...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 23:30

Býður ástföngnum pörum að skoða skolphreinsistöð

Viltu gera eitthvað nýtt á Valentínusardeginum? Hvað með að bjóða makanum í skolphreinsist...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 22:00

Norður-kóreskir harmonikkuspilarar fara sigurför um heiminn

Norski tónlistarmaðurinn Morten Traavik gerði skemmtilega menningarlega uppgötvun þegar ha...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 16:47

Fagna byltingarafmæli með því að boða til mótmæla

Ár er liðið frá því Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, hrökklaðist frá völdum eftir mótmæ...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 15:08

Blaðamenn breska blaðsins The Sun handteknir

Breska götublaðið The Sun er í uppnámi eftir að lögreglan í Lundúnum handtók fimm blaðamen...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 15:04

Hershöfðingi myrtur í Sýrlandi

Byssumenn skutu og myrtu sýrlenskan hershöfðingja fyrir utan heimili hans í Damascus, höfu...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 13:36

Játar að hafa rænt barni fyrir 23 árum og alið upp sem sitt eigið

Ann Pettway hefur játað að hafa rænt nítján daga gömlu stúlkubarni af spítala í Harlem ári...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 10:04

Ætlaði að drepa Obama

Tuttugu og tveggja ára maður frá Úsbekistan hefur játað að hafa skipulagt að drepa Barack ...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 10:02

Saudí-Arabar vilja að ályktun gegn Sýrlandi verði samþykkt

Saudí-Arabar reyna nú að fá Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna til að samþykkja ályktun þar...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 06:00

Stanslausar árásir í heila viku

Tvær sprengjur sprungu við herstöð í borginni Aleppo og ollu miklu tjóni. Þar í borg hefur...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 05:00

Lögregla í átökum við mótmælendur

Þótt þjóðstjórnin í Grikklandi hafi samþykkt ný niðurskurðaráform er enn eftir að tryggja ...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 04:00

Lokaður heimur opnast

Rússneskum vísindamönnum hefur tekist að bora leið niður í stórt stöðuvatn sem hefur verið...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Erlent / Næsti forseti Bandaríkanna hugsanlega hershöfðingi