Fundi samninganefndar flugvirkja og viðsemjenda þeirra hjá Ríkissáttasemjara lauk á fimmta tímanum í dag án niðurstöðu. Nýr fundur er boðaður klukkan 11 á morgun.
Fyrr í dag fundaði samgönguráðherra með samningsaðilum um stöðu mála. Verkfalla flugvirkja sem starfa hjá Icelandair hefst næstkomandi mánudag hafi samningar ekki tekist.
Samgönguráðherra hefur ekkert gefið uppi um hvort til greina komið að setja lög á verkfall flugvirkja en hann var tilbúinn með lagafrumvarp gegn aðgerðum flugumferðarstjóra í síðustu viku. Kristján Kristinsson, formaður samninganefndar flugvirkja, segir að hugsanleg lagasetning hafi ekki borið á góma á fundi nefndarinnar með ráðherra í dag.