Níu starfsmenn hjá utanríkisráðuneytinu starfa þar með sendiherratitil og þiggja laun samkvæmt því. Tveir þeirra hafa aldrei starfað á erlendum vettvangi. Laun þeirra kosta íslenska ríkið tæpar sjötíu og fjórar milljónir króna á ári.
Enginn sendiherra hefur verið skipaður frá því um mitt ár 2008 en utanríkisráðuneytið situr nú uppi með níu sendiherra sem allir voru skipaðir í góðærinu. Allir starfa þeir í ráðuneytinu á Rauðarárstíg og tveir af þeim hafa aldrei starfað á erlendum vettvangi.
Grunnmánaðarlaun sendiherra eru tæplega fimm hundruð og áttatíu þúsund krónur. 577.461 Ofan á grunnlaunin fá þeir svo launataxta eftir tegund verkefna, á lægsta einingataxtanum eru launin þeirra rúmlega 650 þúsund 653.331 og þeim hæsta rúmlega sjö hundruð þúsund. 714.027.
Meðalmánaðartekjur sendiherra hér á landi eru rúmlega 680 þúsund krónur. 683.679
Það kostar því íslenska ríkið um það bil 74 milljónir króna á ári að hafa níu manns á sendiherralaunum starfandi í ráðuneytinu á Rauðarárstíg. 73.837.332
En hendur ráðuneytisins eru bundnar því ekki er hægt að svipta menn sendiherratitlinum, eitt sinn sendiherra ávallt sendiherra. Þeir eru skipaðir, sumir ævilangt og aðrir til fimm ára í senn. Þótt þeir snúi aftur heim og hefji störf hjá ráðuneytinu halda þeir alltaf titilinum ásamt launum og réttindum.