Fiskimjölið var skrásett sem hvalmjöl

Vísir Innlent 19. mars 2010 17:36
Fiskimjölið var skrásett sem hvalmjöl

Vegna frétta um meintan ólöglegan útflutning á hvalaafurðum hefur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið kannað þau tilvik sem vísað er til og gögn eru um á vef Hagstofu Ísland samkvæmt tilkynningu frá ráðuneytinu.

Sú rannsókn hefur leitt meðal annars í ljós að fiskimjöl var skráð sem hvalmjöl.

Yfirlýsinguna má lesa hér fyrir neðan:

Við eftirgrennslan um meintan útflutning á hvalmjöli til Danmerkur kom í ljós að umrætt magn, 775 kíló í janúar 2009 og 22.750 kíló í mars 2009, var fiskimjöl sem vegna mistaka í tollskýrslugerð verið skráð á tollnúmer fyrir hvalmjöl. Viðkomandi fyrirtæki hefur nú leiðrétt mistökin. Hagstofa Íslands mun í framhaldinu leiðrétta þetta á vef sínum þann 31. mars n.k. þegar endurskoðaðar lokatölur fyrir útflutning 2009 liggja fyrir. Íslensk yfirvöld munu einnig taka málið upp við yfirvöld í Danmörku.

Í febrúar 2010 var sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti tilkynnt að íslenskt útflutningsfyrirtæki hefði flutt út 250 kíló af hrefnukjöti til Lettlands. Kjötinu hefði fylgt íslenskt CITES útflutningsvottorð eins og lög segja fyrir um. Hrefna er hjá CITES (alþjóðasamningi um verslun með dýr í útrýmingarhættu) skráð á Viðauka I, sem hefur í för með sér miklar hömlur á alþjóðaverslun. Ísland hefur gert athugasemd við þessa listun fyrir sína hönd og er því ekki bundið reglum um verslun með hrefnu samkvæmt Viðauka I.

Ísland hefur þó að eigin frumkvæði fylgt reglum sem gilda um tegundir á Viðauka II þegar kemur að verslun með hvalafurður. Reglur CITES um verslun með tegundir á Viðauka II gera kröfu um að útflutningsríki gefi út CITES-útflutningsvottorð, en engin lagaskilda er fyrir útflutningsland að krefjast innflutningsleyfis.

Engu að síður var haft samband við íslenska útflytjandann og honum tjáð að Lettland hefði ekki gert athugasemd við listun hrefnu á Viðauka I og þarlendum yfirvöldum óheimilt að gefa út innflutningsvottorð fyrir farminum. Þar sem sendingin var farin úr land hafði útflytjandi samband við kaupandann úti og lét hann vita af þessu.

Í framhaldinu hefur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti verið með í athugun hvaða leiðir séu færar til að koma í veg fyrir að þetta endurtaki sig og mun verða gripið til viðeigandi ráðstafana á næstunni.



Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 11. feb. 2012 22:32

Mundu eftir mér sigraði í Evróvisjón

Það var lagið Mundu eftir mér sem sigraði í Evróvisjón í kvöld. Það var Greta Salóme Stefá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 20:00

Rokkarar heimtuðu hættulegt rauðvín

Nokkrir aðdáendur hljómsveitarinnar Motörhead mótmæltu ákvörðun vínbúðarinnar um að leyfa ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 19:30

Fórnarlambið á Þórshöfn með mikla höfuðáverka

Rúmlega sjötugur karlmaður liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild sjúkrahússins á Akureyri ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 18:30

Óvíst hvaða lög sprengjumaðurinn braut

Karlmaður á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið sprengjunni fyrir skammt frá Stjórnarr...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 17:35

Búist við hríðarveðri seint í kvöld

Það hvessir af suðri seint í köld og hlýnar heldur. Á hæstu fjallvegum um landið vestanve...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:39

Fimm sagt sig af lista Kópavogsbúa vegna óánægju

Fimm hafa sagt sig úr Y-lista Kópavogsbúa eftir að Rannveig Ásgeirsdóttir myndaði meirihlu...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:13

Útigangsmenn hrelldu börn á Klambratúni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um að útigangsmenn hefði verið ofstopafull...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:06

Ætlaði að slökkva á brunaboðanum en ræsti innbrotsboðann í staðinn

Hann var óheppinn iðnaðarmaðurinn sem var að störfum á Kleppsspítala í morgun. Lögreglu bá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:02

Skyndihjálparmaður Íslands bjargaði dóttur sinni

Rauði kross Íslands hefur valið Gísla Örn Gíslason sem skyndihjálparmann ársins 2011 fyrir...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:28

Játning í sprengjumálinu

Karlmaður á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið sprengju fyrir skammt frá Stjórnarráði...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 10:45

Braust inn til manns á áttræðisaldri og misþyrmdi hrottalega

Rúmlega sjötugur karlmaður liggur þungt haldinn á sjúkrahúsinu á Akureyri eftir alvarlega ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 13:30

Aukin þyngd sjúklinga hækkar kostnað vegna lyfja

Aukin þyngd sjúklinga hefur hækkað kostnað Landspítalans vegna lyfja síðustu misseri. Muna...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:29

Karlmaður stunginn og svo færður í fangageymslu

Karlmaður var stunginn í nótt í Hafnarfirði og handtók lögreglan fjóra menn vegna málsins....  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:09

Ákvörðun um gæsluvarðhald tekin í dag

Lögreglan tekur ákvörðun um það síðar í dag hvort að krafist verði gæsluvarðahalds yfir ka...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 11:47

112-dagurinn haldinn í dag - vélmenni og sprengjubíll í Smáralindinni

112-dagurinn verður haldinn um allt land í dag. Markmið dagsins er að kynna neyðarnúmerið ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:56

Færð og aðstæður: Hálka víða á Suðurlandi

Hálkublettir eru á Hellisheiði og Þrengslum en snjóþekja á Lyngdalsheiði, en hálkublettir ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:45

Fíkniefnasali á Menntavegi og grillaðir unglingar í Gvendargeisla

Lögreglan hafði afskipti af fjórum unglingum við Gvendargeisla um klukkan hálf tólf í gærk...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:00

Bíða Alþingis og fresta innheimtu

Kristbjörg Stephensen borgarlögmaður segir í minnisblaði til borgarráðs að borgin verði að...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:30

Óttast að verðmætar minjar endi í bræðslu

Safnaráð tók skeiðar og skart úr silfri af breskum kaupmanni sem hugðist fara með góssið ú...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:00

Eftirlitsstofnun vill kröfur í lög fyrir marslok

Íslensk stjórnvöld telja að nýtt frumvarp um starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. (RÚV) muni inn...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 07:00

Frumvarp um barnalög gamaldags

Anja Cordes, lögfræðingur á sviði fjölskylduréttar í Danmörku, segir í viðtali við Fréttab...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / Fiskimjölið var skrásett sem hvalmjöl